Skinfaxi - 01.09.1966, Qupperneq 3
UMFÍ á Sauðárkróki
15. sambandsráðsfundur UMFI var
haldinn á Sauðarkróki 25. september
s.l.. Fundinn sátu 13 fulltrúar héraðs-
sambanda og úr stjórn UMFÍ. Auk
tess voru á fundinum tveir fulltrúar
úr Þrastaskógarnefnd og ritstjóri
Skinfaxa. Því miður vantaði á fundinn
fulltrúa allmargra héraðssambanda.
Sr. Eiríkur J. Eiríksson, sambands-
stjóri, setti fundinn með ræðu og
stjórnaði honum. Fundarritarar voru
beir Guðmundur Sigurðsson og Valdi-
mar Óskarsson.
Framkvæmdastjóri UMFl, Ármann
Pétursson skýrði skýrslu stjórnarinn-
ar, sem lögð hafði verið fyrir fundinn.
I skýrslunni er m.a. greint frá þeirri
hugmynd, að efla starfsíþróttir með
bréfaskólakennslu. Rakti fram-
hvæmdastjóri skýrsluna lið fyrir lið
og lýsta framgangi þeirra mála, sem
stjórnin hefur unnið að. Umræður
Urðu engar um skýrsluna.
Helztu atriði skýrslunnar eru birt
hér aftar í blaðinu.
Tillögur
Lagðar voru fram fjölmargar tillögur
bæði af stjórninni og einstökum full-
trúum. Voru tillögurnar ræddar og
þeim síðan vísað til nefnda. Meðal
þeirra var tillaga um tilhögun íþrótta-
keppninnar á næsta landsmóti, sem
birt var í síðasta hefti Skinfaxa.
Aðrar tillögur, sem samþykktar voru
á fundinum, verða birtar hér á eftir.
Um Þrastaskóg
Stefán Jasonarson, formaður milli-
þinganefndar um málefni Þrastaskóg-
ar, hafði framsögu um álit nefndar-
innar. Gerði hann ýtarlega grein fyrir
starfi nefndarinnar. Hann rakti sögu
skógarins og framkvæmda þar, og
lýsti tillögum nefndarinnar um fram-
tíð staðarins.
1. Skipulag skógarins.
2. Framkvæmdir við íþrótta svæð-
ið.
3. Bygingaframkvæmdir.
4. Fjáröflunarleiðir.
5. Samstarf við héraðssamböndin.
Allmiklar umræður urðu um Þrasta-
skóg, og kom glöggt í ljós áhugi ung-
mennafélaga fyrir þessari eign sinni
og framtíð hennar.
Varðandi Þrastaskóg var samþykkt
eftirfarandi tillaga á fundinum:
„Sambandsráðsfundur þakkar milli-
þinganefnd í Þrastaskógarmálinu starf
og álit og telur rétt, að nefndin leggi
SKINFAXI
3