Skinfaxi - 01.09.1966, Side 6
skorar á Alþingi og ríkistjórn að efla
félagsheimilasjóð, svo að honum verði
unnt að gegna hlutverki því, er honum
var upphaflega ætlað með lögum frá
1947.“
,,15. sambandsráðsfundur UMFI
beinir þeim tilmælum til hæstvirts
menntamálaráðherra, að hann leggi
fyrir Alþingi tillögur nefndar er hann
skipaði 1963 til að athuga hag íþrótta-
sjóðs með tilliti til fjárveitinga til í-
þróttamannvirkja."
„15. sambandsráðsfundur UMFÍ
haldinn á Sauðárkróki 25. september
1966, beinir þeirri eindreignu áskorun
til Alþingis, og ríkisstjórnar, að hraða
sem mest framkvæmdum við bygging-
ar Iþróttakennaraskóla íslands, svo að
skólanum verði hið fyrsta mögulegt að
veita skólavist þeim, er þar vilja
stunda nám, enda telur fundurinn, að
skortur á íþróttakennurum og leið-
beinendum á sviði félagsmála standi
frjálsu starfi út um landið mjög fyrir
þrifum."
„15. sambandsráðsfundur UMFl
samþykkir fyrir sitt leyti að stofnað
verði til samvinnunefndar UMFl og
ISÍ, sem í séu formenn hvors sambands
og fulltrúi hvors þeirra, er stjórnir
samtakanna tilnefni."
„15. sambandsráðsfundur UMFl
telur eðlilegt, að héraðssamböndin og
einstök félög leysi hin ýmsu verkefni
æskulýðsmála í virku sjálfstæðu fé-
lagsstarfi áhugamanna, en þau séu
ekki í æ ríkara mæli fengin í hendur
opinberum eða hálfopinberum nefnd-
um.“
„Sambandsráðsfundur UMFÍ 1966
samþykkir að kjósa fimm manna
milliþinganefnd, er skili áliti sínu á
næsta þingi UMFl.
Fllutverk nefndarinnar verði að gera
athuganir á stöðu og hlutverki ung-
mennafélaganna í íslenzku nútíma-
þjóðfélagi og gera tillögur um starf-
semi UMFÍ í náinni framtíð.”
I nefnd samkvæmt tillögunni voru
kjörnir:
Aðalmenn: Valdimar Óskarsson,
Kristján Ingólfsson,
Óskar Ágústsson,
Jóhannes Sigmundsson,
Guðmundur Sigurðsson.
Varamenn: Magnús Stefánsson,
Sveinn Jónsson,
Snorri Þorsteinsson,
Stefán Jasonarson og
Ulfar Ármannsson.
0
SKINFAXI