Skinfaxi - 01.09.1966, Qupperneq 14
stjórnarráði og fræðslumálastjórn og
fjölda áhrifamanna og stofnana víðs-
vegar um landið. Vigfús Sigurgeirsson
vinnur nú að því að fullgera kvikmynd
sína af landsmótinu og mun hún vænt-
anlega verða tilbúin til sýninga áður
en langt um líður. 13. landsmót UM
Fí verður haldið að Eiðum á Fljóts-
dalshéraði sumarið 1968. Hefur stjórn
UMFÍ falið Ungmenna og íþróttasam-
bandi Austurlands undirbúning og
framkvæmd mótsins. Er þegar hafin
víðtækur undirbúningur að mann-
virkjagerð og félagslegu skipulagi inn-
an UÍA vegna mótsins.
Tímarit UMFÍ Skinfaxi
Skriður hefir nú komið á útgáfu Skin-
faxa. I athugun er hvort unnt sé, að
stækka ritið og fjölga heftum í a.m.k.
6 á ári.
Starfsíþróttir
Starfsíþróttir eiga víða miklum vin-
sældum að fagna meðal ungmennafé-
laganna, enda voru þær áberandi þátt-
ur í síðasta landsmóti. Stefán Ó1 Jóns-
son hefur nú hætt leiðbeinendastarfi
sínu hjá UMFÍ, og ekki er ennþá ráð-
ið hver við tekur. Er nú í athugun hjá
sambandsstjórn að efla þessa starf-
semi með nýjum aðferðum og ráða til
sín starfsmann til þess að skipuleggja
og leiðbeina á þessu sviði.
Þrastalundur og Þrastaskógur
I sumar var lokið við að jafna gróður-
mold yfir íþróttasvæðið í Þrastaskógi,
Er þá eftir að sá í það og lagfæra um-
hverfið. Gróðursettar voru 2300 plönt-
ur í skóginnn, og unnu það ungmenna-
félagar úr Árnessýslu undir stjórn
Þórðar Pálssonar. Rýmkuð hefir verið
heimild UMFÍ til sölu leyfa til stanga-
veiði í Sogi fyrir landi Þrastaskógar.
Er þess að vænta að það leiði til auk-
innar tekjuöflunar til uppbyggingar-
starfsins í skóginum. Veitingaskáli
UMFÍ var opnaður fullbyggður um
mánaðarmótin júlí—ágúst 1965 og
hafin þar veitingarekstur um mánað-
tíma. Starfsemi þessi gekk eftir atvik-
um vel þótt við ýmsa byrjunarörðug-
leika væri að etja. I sumar leigði sam-
bandsstjórnin héraðsamb. Skarphéðni
veitingaskálann, sem hefir rekið þar
veitingastarfsemi og fyrirgreiðslu
ferðamanna með sama sniði og sl.
sumar. Er það mál þeirra, sem heim-
sótt hafa Þrastalund, að bæjarbragur
sé þar hinn bezti og staðurinn sé ung-
mennafélögunum til sóma. Sérstök
milliþinganefnd starfar nú að athugun
á framtíð Þrastaskógar og Þrastalund-
ar með sérstöku tilliti til þess, að þar
rísi upp síðar félagsmálamiðstöð
ungmennafélaganna og einnig eru í at-
hugun hjá nefndinni leiðir til fjáröfl-
unar til þess að færa út starfsemina
þar. Nefndina skipa þeir Stefán Jas-
onarson form., Böðvar Pálsson, Snorri
Þorsteinsson, Úlfar Ármannson og
Skúli H. Norðdahl. Mun nefndin skila
áliti á næsta sambandsþingi.
Ibróttir
Mikið vantar á það undanfarin ár, að
Iþróttasjóður hafi staðið við lögboðnar
skuldbindingar vegna greiðslukostn-
aðar við iþróttakennsluna í landinu.
14
SKINFAXI