Skinfaxi - 01.09.1966, Side 17
Aff vettvangi
ungmennafélaganna
Ársþing UMSK
44. sambandsþing Ungmennasambands Kjal-
arnesþings var haldið að Áskarði í Kjós þann
20. nóv. 1966 Sambandsstjóri Úlfar Ár-
^annson setti þingið og bauð fulltrúa og
gesti velkomna á þingið. 35 fulltrúar sóttu
tingið auk gesta, sem voru þeir Ármann
Pétursson frkvstj. UMFÍ og Eysteinn Þor-
valdsson ritstj. Skinfaxa. Fluttu þeir ávörp
a þinginu. Forsetar þingsins voru Jón M.
Guömundsson, Pálmi Gíslason og Ól. Þór
Olafsson. Þingritarar voru Sigurður Skarp-
héðinsson og Gunnar Magnússon.
Sambandsstjóri Úlfar Ármannson flutti
skýrslu stjórnar, sem nú í fyrsta skipti lá
fyrir fjöirituð ásamt reikningum og úrslit-
Uttl af mótum sambandsins. Gjaldkeri Sig-
urður Skarphéðinsson gerði grein fyrir reikn-
tngum sambandsins.
Starfsemi innan sambandsins er með mikl-
Utn blóma, og sýnir það bezt gott starf á
síðasta ári. Sambandið hélt mörg íþrótta-
rn°t og tók þátt í flestum íþróttamótum sem
kaldin voru í Reykjavik á síðasta sumri
með Umf. Breiðablik í broddi fylkingar. Einn-
lng stóð sambandið fyrir víðavangshlaupi
rniHi skóla á sambandssvæðinu með hátt á
annað þúsund þátttakendum, ef taldir eru
ullir þeir sem tóku þátt í undanrásunum.
SKINFAXI
Þingið tók fyrir mörg mál og gerði margar
ályktanir m.a. til eflingar íþrótta- og æsku-
lýðsmála á svæðinu, stækkun sambandsins,
ráðningu framkvæmdastjóra og margt fleira.
Innan sambandsins eru nú sex félög, það eru
umf. Drengur Kjós, Umf. Kjaiarness, Kjalar-
nesi, Umf. Afturelding Mosfellssveit, Umf.
Breiðablik, Kópavogi, Umf. Stjarnan Garða-
hreppi og Umf. Bessastaðahrepps, með sam-
tals 887 félaga.
Nokkur atriði úr starfi UMSE 1966
íþróttakennsla hófst hjá UMSE í júnímán-
uði og lauk seint í ágúst. Þrír leiðbeinendur
ferðuðust um sambandssvæðið og veittu til-
sögn hjá félögunum á kvöldin. Mæltist þessi
starfsemi vel fyrir, æfingarnar voru mjög
vel sóttar, oft milli 40—50 þátttakendur é
hverri. Aðallega var veitt tilsögn í frjálsum
íþróttum, handknattleik og knattspyrnu. Þá
stóð sambandið fyrir vel sóttu glímunám-
skeiði á Akureyri i samvinnu við íþrótta-
bandalagið þar.
Komið var á tveimur sumarbúðanámskeið-
um að Laugalandi fyrir börn og unglinga.
Var það þriðja árið í röð sem UMSE beitti
sér fyrir slíkri starfsemi. Að þessu sinni
dvöldu nær 100 þátttakendur í sumarbúð-
unum og voru flestir úr héraðinu. Aðaluppi-
17