Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.09.1966, Qupperneq 19

Skinfaxi - 01.09.1966, Qupperneq 19
Guðmundur Guðmunds- son (t.v.) og Þórir Þorgeirsson leiðbeina drengjum á sumarbúðanámskeið- inu að Laugarvatni. og þrenn verðlaun veitt í hverjum aldurs- flokki. Efnt var til skemmti- og kynnisferða um nágrenni Laugarvatns, í samfylgd kunnugra. Stjórn HSK bauð þátttakendum í námskeið- um þessum í kynnisferð í Þrastaskóg, og bauð til samfagnaðar og veitinga í Þrasta- lundi. Helgina 25. júní til 26. júní milli nám- skeiðanna efndi HSK til námskeiðs fyrir leið- beiðendur í frjálsum íþróttum á Laugarvatni. Aðalkennarar á námskeiðinu voru íþrótta- kennararnir Benedikt Jakobsson, og Þórir Þorgeirsson. Þátttakendur voru 12 frá sam- bandsfélögum HSK. Námskeið þessi tókust í allastaði mjög vel og mun áfram haldið á sömu braut, fáist uðstaða á Laugarvatni. Ársþing UlA Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands hélt 23. þing sitt að Eiðum fyrir skömmu. Forsetar þingsins voru kjörnir Þorkell Stein- SKINPAXI ar Ellertsson, Eiðum, og Stefán Þorleifsson, Neskaupstað. Formaður flutti skýrslu stjórnar og verða hér á eftir rakin helztu atrið hennar. Fyrsta fjórðungsglíma Austurlands var háð í sumar. Keppendur voru 6 — þrír frá Seyðisfirði og þrír frá Reyðarfirði. Sigurveg- ari varð Hafsteinn Steindórsson, Seyðisfirði og hlaut hann að verðlaunum fagurt glímu- horn, gefið af Ólafi Ólafssyni, útgerðarmanni á Seyðisfirði. Nú var í fyrsta skipti keppt í þrem flokk- um á knattspyrnumóti Austurlands. Mjög góð þátttaka var í flokki 13—15 ára, eða alls 8 félög. Austri, Eskifirði, sigraði. í flokki 15—17 ára mættu aðeins þrjú félög til leiks. Austurlandsmeistari varð Þróttur, Neskaup- stað. Þróttur sigraði einnig í meistaraflokki og er það í fyrsta sinni, sem félagið hreppir meistaratitilinn. Töluvert var um knatt- spyrnuheimsóknir og ferðalög á árinu. Handknattleikur var með líflegra móti. Keppt var í þrem flokkum á Austurlandi og varð Þróttur sigurvegari í meistaraflokki karla og kvenna en Leiknir sigraði í 2. flokki 19

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.