Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.09.1966, Síða 20

Skinfaxi - 01.09.1966, Síða 20
kvenna. Þar að auki fóru Þróttarstúlkur í keppnisför til Reykjavíkur og hingað komu keppnisfiokkar beggja kynja frá Húsavík og frá Ármanni, Reykjavik. Sundmeistaramót ísiands var haldið í Nes- kaupst.að. Frjálsíþróttaráð UÍA gekkst fyrir nám- skeiði í frjálsum íþróttum fyrir unglinga, svo og leiðbeinendanámskeiði, er haldið var í samstarfi við ÍKÍ og FRÍ. Forstöðumaður þessara námskeiða var Þorkeil Steinar Ell- ertsson, skólastjóri að Eiðum. Með þessum námskeiðum er farið inn á nýja og mjög at- hyglisverða braut. Verði framhald á þess- um námskeiðum, er ekki vafi á, að af þeim verður bœði mikill og góður árangur. Fátt hefur bagað félögin meira en skortur á leið- beinendum og eins munu unglingarnir lengi búa að því að þjálfa undir handleiðslu úr- valsþjálfara, en Þorkell Steinar er viður- kenndur sem einn okkar snjöllustu frjáls- íþróttaþjálfara. Fyrir milligöngu iþróttafulltrúa ríkisins réðst til UÍA norskur íþróttakennari, Gisle Espolin Johnson. Dvaldist hann hér í 7 mán- uði og kenndi á alls 9 stöðum á sambands- svæðinu. Þetta er annað árið í röð, sem UÍA hefur norskan þjálfara á sínum snærum. Báðir hafa þeir reynzt ágætlega, en hitt gefur að skilja, að þeir þurfa sinn tíma til að kynnast okkar aðstæðum og væri því mun æskilegra ef íslendingur fengist í starf- ið. Er það og varla vanzalaust, að svo skuli ástatt í iandinu, að leita þurfi á náðir ann- arra þjóða til að fá íþróttaleiðbeinendur fyr- ir æsku landsins. UÍA hélt skógarhátíð í Atlavík um verzl- unramannahelgina annað árið í röð. Fór hún hið bezta fram og þótti sómi að. Sýslumaður S.-Múla., Axel Thulinius, hefur átt stóran þátt í hve vel samkomur þessar hafa heppn- azt og kann UÍA honum miklar þakkir fyrir. Á síðasta ári auglýsti stjórn UÍA eftir til- lögum að merki sambandsins. Alls bárust 12 tillögur og hlaut tillaga Guðjóns E. Jónsson- ar, skólastjóra að Hallormstað, fyrstu verð- laun, kr. 5000. Notar Guðjón hreindýrshorn- ið sem táknmynd í merkinu og litirnir eru blátt, rautt og hvítt — en það eru þeir litir sem UÍA hefur þegar tileinkað sér. Með tilliti til væntanlegs Landsmóts UM FÍ að Eiðum sumarið 1968 hafa verið hafnar framkvæmdir við endurbyggingu íþrótta- leikvangsins að Eiðum. Forustu um fram- kvæmdir hefur Björn Magnússon haft. Hafa framkvæmdir gengið vel, en mikið starf og fjárfrekt er framundan. Ymislegt fleira kom fram í skýrslunni sem ekki er rúm til að rekja hér að sinni. Ætti líka af þessu að sjást, að starf UÍA er fjölþætt og krefst bæði mikillar vinnu og peninga Stuðningur bæjar- og sveitarfélaga hefur verið sambandinu mikil örvun í starfi og lítur UÍA á það sem viðurkenningu á mikilvægi þess hlutverks, sem það hefur tekið að sér — að veita æskunni tækifæri til hollra tómstundaiðkana, — til heilbrigðs lífs. Heildarsamtök íslenzkrar æsku, ÍSÍ og UM FÍ, áttu sína fulltrúa á þinginu. Frá ÍSÍ mættu: Gísli Halldórsson, forseti, Sveinn Björnsson og Þorvarður Árnason stjórnar- menn. Frá UMFÍ Ármann Pétursson gjaldkeri, Hafsteinn Þorvaldsson, ritari, sem jafnframt var framkvæmdastjóri Laugarvatnsmótsins og Stefán Jasonarson form. síðustu Lands- mótsnefndar. Fluttu þeir UÍA gjafir og árn- aðaróskir. Þá barst og vegleg fjárupphæð frá hreppsnefnd Eiðaþinghár. Forseti ÍSÍ sæmdi Þórarin Sveinsson æðsta heiðursmerki sambandsins og einnig voru þeir Stefán Þorleifsson og Kristján Ingólfs- son sæmdir gullmerki ÍSÍ. Stjórn UÍA, sem kjörin var í þinglok, er skipuð þessum mönnum: Formaður Kristján Ingólfsson, Eskifirði. Aðrir í stjórn: Björn Magnússon, Eiðum; Jón Olafsson, Eskifirði; Magnús Stefánsson, Fáskrúðsfirði; Elma Guðmundsdóttir, Neskaupstað; Kristján Magnússon, Egilsstöðum og Sveinn Guð- mundsson, Eiðum. 20 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.