Skinfaxi - 01.12.1969, Blaðsíða 15
Landgræðsluíerðir
Skarphéðins
Ungur menntaskólanemi, Emma Eyþórsdóttir frá Kaldaðarnesi,
hefur skrifað eftirfarandi frásögn fyrir Skinfaxa,
en hún var þátttakandi í landgrœðsluferðum
Héraðssambandsins Skarphéðins síðastliðið sumar.
Síðast liðið sumar voru farnar tvær
hópferðir á vegum H. S. K. til þess að
græða landið okkar, og var ég undir-
rituð, þátttakandi í báðum þessum ferð-
um. Fyrri ferðin var farin um miðjan
júlí inn á Biskupstungnaafrétt, en sú
síðari í september austur á Landeyja-
sand.
Ferðin inn á Biskupstungnaafrétt var
tveggja daga ferð og var farið um helgi.
Lagt var upp frá Selfossi á laugardags-
morgun í sæmilegu veðri á tveimur
langferðabílum og ennfremur var farið
á nokkrum jeppum úr Biskupstungum.
Þátttakendur voru um það bil 60, flest-
ir ungt fólk en nokkrir gamlir og góðir
ungmennafélagar voru einnig með í för-
inni. Ekið var sem leið liggur inn á
Biskupstungnaafrétt og áð einu sinni a
leiðinni til þess að taka sárasta sultinn
úr mannskapnum.
Þegar komið var á ákvörðunarstað,
landgræðslugirðingu norðan í Bláfelli,
var tekið til óspilltra málanna við áætl-
unarverkið sem var að dreifa áburði og
fræi. Ekki voru veðurguðirnir okkur
sérstaklega hagstæðir því að þegar við
vorum nýkomin tók að hellirigna og
varð ekkert lát á því um daginn. Samt
var unnið af kappi í nokkra klukkutíma
en þá var ákveðið að fara strax í nátt-
stað og vita hvort ekki stytti upp dag-
inn eftir svo betri skilyrði yrðu til
vinnu. Gist var í Ásgarði, húsi F. I. í
Kerlingarfjöllum, og var þar þröngt á
þingi en samkomulagið var afskaplega
gott svo að það kom ekki að sök. Um
kvöldið var sungið og farið í leiki og ég
held að allir hafi skemmt sér vel.
Morguninn eftir var sama rigningin
en við því var ekkert að gera nema
setja í sig hörku og drífa sig út. Laust
eftir hádegi vorum við komin aftur í
girðinguna við Bláfell og tekin til við að
bera áburð. Þarna voru komnar grænar
flesjur á víð og dreif, sem sáð hafði
verið í árin áður og er mikill munur
orðinn á þessu svæði síðan það var
girt. Dreift var áburði og fræi yfir mest-
allt girta svæðið, og ég hugsaði að það
yrði munur að sjá þetta þegar það væri
allt saman orðið grænt. Vonandi verður
SKINFAXI
15