Skinfaxi - 01.12.1969, Qupperneq 17
Listaverk Ásmundar Sveinssonar
Bókvitið í askana
Hin myndarlegu félagsheimili, sem reist hafa
verið víðs vegar um landið á undanförnum
árum, verðskulda sannarlega að umhverfi
þeirra sé prýtt með fallegum gróðri og lista-
verkum. Hér er getið hins myndarlega fram-
taks Ungmennafélags Biskupstungna, er það
keypti listaverk eftir Ásmund Sveinsson og
minntist 60 ára afmælis síns með því að
staðsetja það við félagsheimilið Aratungu.
Þegar fyrst komst til umræðu, á hvern
hátt skyldi minnzt sextugsafmælis Ung-
mennafélags Biskupstungna, kom fram
tillaga þess efnis að í sambandi við af-
mælið yrði reynt að minnast á varan-
legan hátt þess hlutverks, sem Biskups-
tungur hafa gegnt í íslenzkri menning-
arsögu. Rakti tillögumaður nokkuð
hvert það hlutverk var og benti jafn-
framt á þann möguleika að kaupa lista-
verk og reisa við Aratungu, félagsheim-
ili Biskupstungnamanna. Hugmynd
þessi fékk þegar mjög góðar undirtekt-
ir, og á aðalfundi félagsins árið
fyrir sextugsafmælið var kosin nefnd
til undirbúnings afmælishátíðar. For-
maður nefndar þeirrar var kosinn
Hreinn Erlendsson, en hann hafði átt
hugmyndina að listaverkskaupunum.
Var hann sendur á stúfana að athuga
frekar hvort sú hugmynd væri fram-
kvæmanleg, og reyndist svo vera.
Ræddi hann m. a. við Ásmund Sveins-
son myndhöggvara og tók Ásmundur
erindi Tungnamanna af sinni kunnu
alúð og fékk þegar áhuga fyrir fram-
gangi þessa verkefnis. Einkum komu til
af kappi við melskurðinn til miðaftans.
Þá var búið að fylla 14 tunnusekki af
melfræi, sem fluttir voru að Gunnars-
holti litlu síðar.
Á heimleiðinni var komið á sögustaði
í Rangárvallasýslu og gerði það ferðina
að skemmtiferð að nokkru leyti. Á
Bergþórshvoli sagði Sr. Sigurður Hauk-
dal frá staðháttum við Njálsbrennu og
uppgreftri þar og höfðu allir gaman af.
Þessi fyrsta melskurðarferð H. S. K.
var mjög vel heppnuð og skemmtileg
og er vonandi að framhald verði á slík-
um ferðum á vegum H. S. K. sem og
öllu landgræðslustarfi ungmennafélag-
anna um land allt. Vona ég að við ber-
um gæfu til að geta grætt upp öll þau
uppblásnu landssvæði sem eru um allt
land, þannig að landið okkar verði allt
grænt aftur eins og sagt er að það hafi
verið þegar landnámsmenn komu hing-
að. Ungmennafélögin hafa unnið mikið
og gott starf til þess að það megi verða
og óska ég þeim góðs gengis í því starfi.
SKINFAXI
17