Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1970, Page 6

Skinfaxi - 01.12.1970, Page 6
þá krafta sem að æskulýðsmálum vinna. Ráðinu er ekki ætlað að auka bein ríkis- afskipti af æskulýðsmálum heldur stuðla að því, að störf þeirra aðila, sem nú vinna að slíkum málum, nýtist betur og mark- vissar. Það er m. a. hlutverk Æskulýðsráðs, að gera tillögur til menntamálaráðuneytis- ins um fjárveitingar til æskulýðsmála, halda umræðufundi og ráðstefnur um þau mál, safna ýmsum gögnum hérlendis og erlendis og hafa í hvívetna vakandi auga með nýjungum í æskulýðsstarfi og hlutast til um fræðilegar rannsóknir á sviði æskulýðsmála. í greinargerð nefndarinnar segir: „Það skal skýrt tekið fram, að nefndin telur að í engu megi skerða þær fjárveitingar og þann fjárstuðning, sem einstök æskulýðs- samtök njóta í dag Æskulýðrsáð ríkisins hefur nú verið kosið samkv. ákvæðum laganna. Fulltrú- ar aðildarsambanda Æ.S.Í. og annarra æskulýðssambanda, eru: Séra Bemharður Guðmundsson, æskulýðsfulltr. Þjóðkirkj- unnar, Skúli Möller, fyrrverandi fram- kvæmdastj. Æ.S.Í. og Hafsteinn Þor- valdsson, form. U.M.F.Í. Varafulltrúar: Hannes Þ. Sigurðsson, Þorsteinn Ólafs- son og Þorbjörn Broddason. Fulltrúi Samb. ísl. sveitarfélaga er Gylfi ísaksson bæjarstjóri Akranesi. Varam.: Markús Örn Antonsson. Menntamálaráðherra hefur svo skipað formann, Örlyg Geirs- son. Gert er ráð fyrir, að ráðinn verði sér- stakur æskulýðsfulltrúi ríkisins, er annist framkvæmdastjórn fyrir Æskulýðsráð. NÝ TÆKIFÆRI Allir þeir aðilar, sem sinna æskulýðs- starfsemi hér á landi, eru sammála um, að það, sem einna helzt hái slíkri starf- semi, sé skortur á þjálfuðum leiðbeinend- um og fjárhagsleg vangeta til þess að greiða þeim laun. Einnig skortir tilfinn- anlega leiðtoga, þ. e. menn, sem hafa vilja og getu til þess að stjóma félagsmál- um og skipuleggja þau. Samkv. lögunum er gert ráð fyrir að halda leiðtoga-nám- skeið, og að allur kostnaður við slík nám- skeið greiðist úr ríkissjóði. Þá er og gert ráð fyrir heimild til þess að styrkja efni- lega æskulýðsleiðtoga til framhaldsnáms og þjálfunar erlendis. 9. gr. er svohljóð- andi: „Heimilt skal að veita viðurkennd- um aðilum styrki: a) til sumarbúðastarfsemi fyrir æsku- fólk og b) til að laga og bæta aðstæður á ákveðnum útivistarsvæðum." Hér em athyglisverð ákvæði, sem mjög víða gætu komið til framkvæmda, verði úr einhverju fjánnagni að spila. Héraðssambönd og ungmennafélög um allt land standa nú víða fyrir mynd- arlegum sumarbúðarekstri fyrir böm og unglinga, og víða hafa sömu aðilar haft forgöngu um gerð útivistarsvæða til sam- komuhalds, og til þess að skapa dvalar- aðstöðu fvrir ferðafólk. Þá má og minna á Þrastaskóg, sem einn ákjósanlegasta stað sem við eigum hérlendis til þess að skipuleggja í þessu augnamiði. IV. kafli Iaganna fjallar um stuðning bæjar- og sveitarfélaga við æskulýðsmál. Eg tel sérstaka ástæðu til þess að fagna þessari löggjöf um æskulýðsmál, og allir, sem að þessum máluin vinna í dag, vænta þess fastlega, að löggjöfin fari sem fyrst að hafa virk áhrif til fjárhagslegrar fyrir- greiðslu, samræmingar og fræðslu. Góðir ungmennafélagar, mér þótti rétt 6 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.