Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1975, Síða 7

Skinfaxi - 01.02.1975, Síða 7
SYNDA eba SÖKKVA Margoft hefur Skinfaxi reynt að fá ís- lenzkt kunnáttufólk til að skrifa um sund- íþróttina á íslandi, en þetta hefur gengið afar treglega. Minnast má þó ágætrar greinar hér í blaðinu eftir Hörð Óskars- son íþróttakennara fyrir síðasta landsmót UMFÍ og einnar greinar um sund al- mennings eftir Guðmund Þórarinsson. Hins vegar hefur ekki tekist að fá yfir- litsgreinar eða greinar um sundþjálfun og ekki heldur afrekaskrá ungmennafélag- anna í sundi. Væri þó ekki minni ástæða til slíks en að fá afrekaskrána í frjálsum íþróttum sem birst hefur hér í blaðinu um árabil. Er hér með skorað á áhuga- samt og kunnáttusamt sundfólk að taka sig til og semja slíka skrá árlega, svo og metaskrá UMFÍ í sundi. Hvort tveggja er mikilvægt til að auka áhugann og bera saman árangurinn í hinum ýmsu bvggð- um utan höfuðstaðarins. Hins vegar skal þess þó getið að við höfum þá ánægju að birta stutt viðtöl við unga sundkonu og ungan sundmann úr HSK, sem æfa nú bæði af kappi undir landsmótið í sumar. Vonandi getum við náð tali af fleiri slíkum iðkendum sund- íþróttarinnar á næstunni. Horfin frægð Gífurlegar framfarir hafa orðið í sund- inu á síðustu árum, en þær framfarir hafa fyrst og fremst orðið í Evrópu og í Norður-Ameríku. Gömul stórveldi í sund- íþróttinni eins og Japan og Ástralía hafa nú mjög farið halloka. I heimsafreka- skránni fyrir árið 1974 (7 efstu í hverri grein) eiga Japanir aðeins einn sund- mann (Taguchi 4. í 100 m. bringusundi karla). Frá Ástralíu er aðeins tveir karl- menn (Holland 2. í 1500 m. skriðsundi og Copper 6. í 200 m. baksundi) og þrjár stúlkur (Turall, Gray og Lockyer), en engin þeirra í fyrsta sæti. Japanir unnu þó tvenn gullverðlaun í sundi á síðustu olympíuleikum (Taguchi í 100 m. bringusundi og Aoki í 100 m. flugsundi kvenna), en árið eftir olympíu- leikana hófst hin stórstíga sigurganga austur-þjóðverja fyrir alvöru og japanir þokuðust aftur úr. Forseti japanska sundsambandsins, Akira Fujita, sagði í Paul Okwuma frá Nígeríu synti nýlega 100 m. fiugsund : 61,0 sek., og er ekki þesslegur að hann sökkvi í Iauginni. SKINFAXI 7

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.