Skinfaxi - 01.04.1976, Side 8
ast menn vel störfum og starfsaðferð-
um hvers annars og þannig verða all-
ir á námskeiðinu í senn kennarar og
nemendur.
Varaform. PFU, Ingim. Ingimundars.
setti fundinn og greindi nokkuð frá
störfum FFU frá stofnun samtakanna
en þau hafa einkum beinst að kynn-
ingar og fræðslustarfsemi. Nokkrar
umræður urðu síðan um markmið og
starfshætti félagsins en síðan var
gengið til kosninga og fóru þær þann-
ig:
Form. Arnaldur Mar Bjarnas. HSÞ.
Gjaldk. Diðrik Haraldsson HSK.
Ritari Pétur Eysteinsson USAH.
í varastjórn Haukur Hafsteinsson
UMFK, Ingólfur Steindórsson USK,
Sveina Sveinbjörnsdóttir UMSK.
Endurskoðendur Sig. Geirdal og Ingi-
mundur Ingimundarson.
Til að ofgera ekki þátttakendum
með of löngum kyrrsetum, var brugðið
á leik á milli þátta og þá keppt í sundi,
blaki, knattspyrnu o. fl. Mynduðust
skjótt harðsnúin lið og var keppni oft
tvísýn, enda stýrðu liðunum harð-
snúnir foringjar, þær Sveina Svein-
björnsdóttir, sem var foringi Bláu
sveinstaulanna og Lilja Steingríms-
dóttir sem var liðsforingi Rauðu akur-
lilj anna.
Námskeiðið þótti í heild takast með
ágætum, enda gerði veðurblíða og frá-
bær aðstaða sitt til að auka á ánægju
þátttakenda.
Sig. Geirdal.
Afrekaskrá HSK í
frjálsum íþróttum
Komin er úr Afrekaskrá Skarphcðins í
frjálsum íþróttum 1910—1976, stórt og
vandað fjölrit með mörgum prentuðum
myndasíðum. f ritinu eru skrár um 20
bestu afrek, eða þvi sem næst, karla og
kvenna i frjálsum íþróttum innan Hér-
aðssambandsins Skarphéðins allt frá
stofnun þess. í ritinu eru einnig skrár
um 10 bestu afrek i aldursflokkum karla
og kvenna, svo og innanhússafrek. Þá eru
einnig i ritinu metaskrár i öllum flokkum.
Það er Þráinn Hafsteinsson sem tekið
hefur þessar skrár saman, og er hér um
geysimerkt heimildarsafn að ræða fyrir
sögu Skarphéðins. Ólafur Unnsteinsson
tók saman skrá um afrek kvenna og karla
í frjálsum íþróttum i Skarphéðni, og kom
hún út árið 1965. Byggir þessi skrá að
nokkru á henni en bætir við afrekum
síðustu tiu ára og fjöldamörgum öðrum
skrám. Ólafur Unnsteinsson hefur líka
lesið yfir þessa skrá og veitt leiðbeining-
ar.
Það er frjálsiþróttanefnd Skarphéðins
sem gefur ritið út.
8
SKINFAXI