Skinfaxi - 01.04.1976, Blaðsíða 19
Þessi stúlka heitir Valdís Guðmundsdóttir og
er ein af fjölmörgum ungmennum sem á
barnsaldri byrja fimleikaæfingar hjá Gerplu.
hjá félaginu. Við reynum að hafa þetta
sem fjölbreyttast, t. d. kennir Dana
Jónsson nútímaleikfimi hjá félaginu,
og njóta þeir vaxandi vinsælda. Það
má líka geta þess að allmargar af fim-
leikastúlkunum leggja líka stund á
ballett hjá Þjóðleikrúsinu.
— Er mikið um keppni og sýningar
hjá fimleikafólkinu?
— Fimleikasambandið gengst fyrir
tveimur mótum á vetri. Samkvæmt
fimleikastiganum er gert ráð fyrir að
stúlkur keppi í fjórum greinum eins
og ég gat um áðan. Á mótum FSÍ hefur
hins vegar ekki verið keppt á tvíslá
kvenna ennþá. Piltarnir keppa í 6
greinum.
Sýningar eru margar og margvís-
legar. Á landsmóti UMFÍ á Akranesi í
fyrra sýndu flokkar frá Gerplu stökk
og nútímafimleika og einnig jassleik-
fimi. Þá sýndum við á stóru desem-
bersýningunni í Laugardalshöllinni.
Afmælissýningu okkar á sumardaginn
fyrsta gat ég um áðan, og í sumar fara
fjórir flokkar frá félaginu i sýningar-
ferð til Danmerkur. Allar sýningar
styrkja félagsstarfið mikið; í þeim er
hægt að gefa svo mörg tækifæri til að
koma fram. Við leggjum áherslu á að
efla félagsandann sem mest samhliða
æfingunum. í því skyni höfum við
skemmtikvöld á veturna fyrir félags-
fólkið, og á vorin förum við í sameig-
inlegt ferðalag hér innanlands.
SKINFAXI
19