Skinfaxi - 01.04.1976, Blaðsíða 27
varð Eilífur í Mývatnssveit stigahæsta fé-
lagið, en i bikarkeppni fyrir 14 ára og
yngri sigraði Völsungur. Héraðsmót i
sundi var endurvakið á starfsárinu og
haldið í Stórutjarnarskóla. Þátttaka var
mjög góð, 70 keppendur, og hlaut Völs-
ungur flest stig. Héraðsmót var einnig
háð i knattspyrnu, karla- og unglinga-
flokkum og í kvennaflokki, og að lokum
má geta héraðsmóts i blaki bæði fyrir
konur og karla.
Félags- og fjármál
Fjárhagur sambandsins er ekki sem
bestur, og var halli á rekstrarreikningi
um 500 þús. krónur, en niðurstöðutölur
rekstrarreiknings kr. 4.273.183. Styrkir
þeir sem sambandið hefur notið á undan-
förnum árum frá sýslu, kaupfélögum,
bæjar- og sveitarfélögum, hækkuðu
nokkuð en þó ekki í hlutfalli við verð-
lagshækkanir. Fjár var aflað með ýmsu
móti s. s. með mótum og samkomuhaldi,
sölu minjagripa, happdrætti o. fl.
Á starfsárinu áttu tvö félög i HSÞ
merkisafmæli. Umf. Gaman og alvara í
Ljósavatnshreppi átti 70 ára afmæli 27.
desember. Félagið hefur starfað mikið að
íþrótta- og félagsmálum. Það hefur einn-
ig haft góða leikstarfsemi og var leikrit-
ið Maður og kona eftir Jón Thoroddsen
sett á svið í tilefni afmælisins. Jónas
Jónsson frá Hriflu var fyrsti formaður
félagsins, en núverandi formaður er
Hiöðver Hlöðversson á Björgum. Þá átti
Magni i Höfðahverfi 60 ára afmæli.
Á ársþinginu voru kunngerð úrslit í
kosningu iþróttamanns ársins í héraðinu,
en atkvæðagreiðsla hafði farið fram
meðal formanna sambandsfélaganna i
vetur. Hinn nýkrýndi glímukappi íslands,
Ingvi Yngvason var kjörinn íþróttamaður
ársins 1975, en 5 aðrir iþróttamenn og
-konur hlutu viðurkenningu.
Þetta eru stúlkurnar frá Húsavík sem sigr-
uðu á handknattleiksmótinu i Álaborg í fyrra.
Óskar Ágústsson lætur af formennsku
Óskar Ágústsson sem verið hefur for-
maður HSÞ í 19 ár, gaf ekki kost á sér til
endurkjörs. Voru Óskari þökkuð frábær
störf i þágu sambandsins og samþykkt
einróma að gera hann að heiðursfélaga.
Þá baðst Arngrímur Geirsson einnig
undan endurkjöri, en hann hefur verið
gjaldkeri sambandsins i áratug. Voru
honum einnig þökkuð mikil og góð störf
í þágu sambandsins.
Stjórn HSÞ skipa nú þessir menn:
Halldór Valdimarsson formaður, Jónas
Sigurðsson, Völundur Hermóðsson, Freyr
Bjarnason, Arnór Benónýsson, Baldvin
Kr. Baldvinsson og Jón Illugason.
Framkvæmdastjóri HSÞ er Arnaldur
Bjarnason, Fosshóli.
SKINFAXI
27