Skinfaxi - 01.04.1977, Qupperneq 10
myndar, losna við afætur og milliliði
í þjóðfélaginu, ýta til hliðar duglausu
Reykjavíkurvaldi og landssölustefnu
þess, og byggja upp atvinnulíf þjóðar-
innar með eigin kröftum í sam-
vinnu, — vítt um byggðir landsins.
íslendingar geta hjálpað sér sjálfir ef
þeir vinna vel og þagga niður upp-
gjafatóninn.
Gerum orð Guðmundar Inga Krist-
jánssonar í „Sögunni um Jóhann
Fást“ að okkar:
Hygg ei, að tækin þig geymi né girði.
Glerhöll og skart er þér einskis virði.
Hvað gagnar þér heimsins gull að
vinna,
glatirðu sálum barna þinna?
Ef húsbóndi auðsins á herðum þér
situr,
hvað hjálpa þér bílar
og flugvélaþytur?
Hjartað er dýrast, og andinn er yfir.
ísland skal frjálst, á meðan þú lifir.
(Tromsö, 5.2. ’77)
Einar Eyþórsson.
Afhending
forsetamerkisins
Laugardaginn 16. april sl. fór af-
hending forsetamerkisins fram í
Bessastaðakirkju. UMFÍ var boðið að
vera við athöfnina og mætti Gunnar
Kristjánsson sem fulltrúi þess. Er
þetta í 13. sinn sem slík athöfn fer
fram. Um 400 dróttskátar hafa hlotið
forsetamerkið fram til þessa.
í þetta sinn veittu liðlega 30 drótt-
skátar merkinu viðtöku, meirihluti
þeirra var frá Akureyri.
Athöfnin hófst með því að forseti
íslands, dr. Kristján Eldjárn og frú,
ásamt stjórn Bandalags íslenskra
skáta gengu í kirkju. Eftir ávörp og
söng afhenti forseti íslands ungmenn-
unum forsetamerkið. Forsetinn er
sem kunnugt er verndari skátahreyf-
ingarinnar. Að lokinni hugleiðingu
dróttskáta var skátaheitið endurnýj-
að. Athöfninni lauk síðan með söng,
að henni lokinni var öllum viðstödd-
um boðið til kaffidrykkju.
Fimleikasýning hjá Gerplu
íþróttafélagið Gerpla í Hafnarfirði
hélt nemendasýningu í íþróttahúsi
Kennaraskóla íslands 7. maí sl.
Áhorfendapallar voru þétt setnir og
góður rómur var gerður að þvi sem hið
unga fimleikafólk hafði fram að færa.
Sérstaka athygli vakti kynning á fim-
leikastiganum, þar sem sýndar voru
æfingar allra þátta fimleikastigans.
Hópur stúlkna úr Gerplu sýna æfingar á gólfi.
Ljósm. G.K.)
10
SKINFAXI