Skinfaxi - 01.04.1977, Page 11
Hér eru flestir þátttakendur á ungbændaráðstefnunni saman komnir fyrir utan hótelið sem
dvalið var á.
Ungbændaráðstefnan 1977
Dagana -13.—16. mars fór fram í Gol
í Hallingdal ráðstefna fyrir unga
bændur á Norðurlöndum. Fulltrúar ís-
lands voru Jóhann Guðmundsson
Holti í Svínadal og Guðbjartur Gunn-
arsson Hjarðarfelli í Miklaholtshreppi.
Til Noregs var haldið laugardaginn
12. mars og gist í Osló eina nótt, en
haldið til Gol daginn eftir. Ráðstefnan
fór fram á Pers Hotell. Til ráðstefn-
unnar mættu fulltrúar frá Noregi, Sví-
þjóð, Danmörku og íslandi.
Að morgni 14. mars var ráðstefnan
sett.
Að loknu erindi Amund Venger um
þýðingu landbúnaðar fyrir búsetu til
sveita var það síðan rætt í starfs-
hópum.
Eftir hádegismat flutti Odd Gran
sitt erindi og hlaut það sömu af-
greiðslu og hið fyrra. Erindi þetta
fjallaði um samstarf héraða á sviði
landbúnaðar.
Um kvöldið voru samtök ungmenna-
félaga á Norðurlöndum kynnt, og sá
einn fulltrúi frá hverjum samtökum
um kynninguna. Af okkar hálfu virtist
hún ganga mætavel.
SKINFAXI
11