Skinfaxi - 01.04.1977, Síða 18
Kristján Ingólfsson.
*
I minningu
Kristjáns Ingólfssonar
Ungmenna- og íþróttasamband
Austurlands skipuleggur nú enn á ný
fjölbreytt íþrótta- og félagsstarf á
komandi sumri. Enn á ný á austfirsk
æska þess kost að koma saman í starfi
og leik á vettvangi ungmenna- og
íþróttafélaganna.
En er nú allt með sama brag og
undanfarin ár?
Hafa nú ekki orðið þáttaskil í starfi
okkar?
Jú, við söknum fallins vinar.
Kristján Ingólfsson, fyrrverandi for-
maður U.Í.A. er hniginn til moldar.
Svo sannarlega höfum við mikils
velgjörðarmanns að sakna, því að auk
þess sem Kristján gegndi forystu sam-
bandsins um árabil, var hann til síð-
asta dags ómetanlegur bakhjarl okk-
ar, sem nú stöndum i forystusveit, og
ævinlega reiðubúinn til að taka að sér
hver þau störf, sem honum voru falin
af U.Í.A.
Ég hygg að mörgum Austfirðingnum
komi fyrst í hug nafn Kristjáns Ing-
ólfssonar, þegar rætt er um störf
U.Í.A. hin síðari ár. Sá maður, sem
bar hitann og þungann af starfi sam-
bandsins um það leyti, sem undirrit-
aður flutti á Austurland fyrir 12 árum,
var Kristján Ingólfsson.
Hvar sem U.Í.A. stóð fyrir móti eða
samkomu, var Kristján að einhverju
getið, og venjulega var hann sjálfur
mættur til að annast framkvæmd og
til að halda reglu á hlutunum.
Ég undraðist gjarna hvílíkt þrek
það hlaut að útheimta að leggja sig
fram svo sem Kristján gerði á þessum
árum. Ég hygg að fáir eða engir hafi
lagt aðra eins vinnu í það að halda
uppi merki ungmennahreyfingarinnar
hér á Austurlandi. Enda má hiklaust
fullyrða að Kristján hafi unnið öll sín
störf í anda hreyfingarinnar. Hvar
sem hann fór, mátti mönnum ljóst
vera að þar fór hugsjónamaður, sem
ekki lét peningasjónarmið ráða sínum
skoðunum, en studdi ávallt kjörorðið
ÍSLANDI ALLT með orðum sínum og
gerðum.
18
SKINFAXI