Skinfaxi - 01.04.1977, Blaðsíða 19
Ég átti þess kost að kynnast
Kristjáni nokkuð, og hefði ég gjarnan
viljað eiga með honum fleiri sam-
ræðustundir um félags-, íþrótta- og
þjóðfélagsmál. Um þessi mál var þægi-
legt að eiga orðastað við Kristján. Um
leið og ekkert skyggði á hreinskilni
hans í þessum efnum, tók hann fullt
tillit til þess sem viðmælandinn hafði
fram að færa. Er það meira en hægt
er að segja um marga stjórnmála-
menn þjóðarinnar, sem trúa á eigin
boðskap, en eru lítt móttækilegir fyrir
skoðunum raunverulegra og ímynd-
aðra andstæðinga.
Orðkynngi Kristjáns naut sín vel,
bæði við ræðuhöld og í samræðum, en
ræðumaður var hann afburðasnjall.
Mætti ungmennahreyfingin á íslandi
eignast marga slíka á næstu árum.
Ekki veitir af ræðuskörungum við
endurreisn þessarar þjóðlegu hreyf-
ingar, sem á í höggi við ótelandi and-
stæðinga í heimi lífsþægindakapp-
hlaups og verðbólguhugsunarháttar.
Minning um slíkan mann sem
Kristján, er hollt veganesti uppvax-
andi æskulýð, sem nú er að gerast
virkur í hinni íslensku ungmenna-
hreyfingu.
Sigurjón Bjarnason.
Útgáfustarfsemi
Skinfaxa hefur borist Nýr Ijósberi,
ársrit Umf. íslendings, Andakils-
hreppi. Er þetta í þriðja sinn sem
ungmennafélagið stendur fyrir þess-
ari útgáfu.
í Nýjum ljósbera kemur fram að vel
hefur verið starfað og í mörgu verið
að snúast hjá ungmennafélögum. Á
íþróttasviðinu ber frjálsar íþróttir og
sund hæst, en félagið á sundlaug sem
það rekur yfir sumarmánuðina, nefn-
ist hún Hreppslaug. Kemur fram að
rekstur hennar hafi gengið vel á síð-
asta ári. Þjóðdansar voru einnig á
dagskrá Umf. íslendings og sýndi hóp-
ur frá þeim m.a. í Danmörku á lands-
móti ungmennafélaga þar. Þá stóð
félagið fyrir sýningu á leikritinu
Leynimel 13, urðu sýningar sex og
uppselt á allar nema eina.
Félagar í Umf. íslendingi halda
upp gömlum sið og gera sér dagamun
á Jónsmessunni, á síðasta sumri komu
þeir saman á Mannamótsflöt og undu
sér við leiki, hlaup og söng við varðeld.
Formaður Umf. íslendings 1976 var
Sturla Guðbjörnsson.
SKINFAXI
19