Skinfaxi - 01.04.1977, Blaðsíða 25
Sigurgísli
Ingimarsson.
íþróttamaðurinn
Skinfaxi tekur nú upp þá nýbreytn.i
að kynna þá íþróttamenn sem eru
uppvaxandi og hafa staðið sig vel til
þessa á sviði frjálsra íþrótta. Þeir sem
leitað er til fá í hendur staðlað spurn-
ingablað þar sem þeir eru beðnir að
svara nokkrum staðreyndum um
sjálfa sig.
Sá fyrsti, sem kynntur er á þennan
hátt, er skaftfellskur íþróttamaður,
Sigurgísli Ingimarsson.
Nafn: Sigurgísli Ingimarsson
Hæð, þyngd: 1,75—70 kg
Þjálfari; Stefán Hallgrímsson
Fæðingardagur: 10.06.’56
Félag: U.S.V.S.
Staða: nemi
Helsti árangur, sigrar — titlar —
framfarir o.s.frv.
Af öllu öðru ólöstuðu verð ég að
telja árangur minn í 400 m hlaupi í
Árósum 1975 mitt besta. En þar hljóp
ég á 52,5 sek.
Að ná 3ja sætinu í 400 m hlaupi
á Landsmóti U.M.F.Í. 1975 var minn
stærsti sigur til þessa. Ekki aðeins var
þetta sigur fyrir mig heldur einnig
fyrir hið unga og tiltölulega fámenna
ungmennasamband okkar, U.S.V.S.
Helstu titlar eru eftirfarandi:
Stigahæstur einstaklinga í ungl-
ingakeppni F.R.Í. 1974. Stigahæstur
einstaklinga, Héraðsmót U.S.V.S. 1975
og 1976. Besti árangur einstaklings,
Héraðsmót U.S.V.S. 1976.
Mestum framförum náði ég á árun-
um 1972—1976.
Helstu árangrar mínir á þessum ár-
um eru:
Langstökk: 6,13 (upphafl. 5,60)
Hástökk; 1,70 (upphafl. 1,50)
100 m hlaup: 11,5 (upphafl. 12,5)
400 m hlaup: 52,5 (upphafl. 60,5)
1500 m hlaup: 4.37,4 (upphafl. 5.25,0).
Breytt heimilisföng
Skinfaxi minnir lesendur á að til-
kynna um breytingu á heimilisföng-
um, best er að það sé gert án milli-
göngu beint á skrifstofu UMFÍ í síma
14317.
Lesendur geta einnig hringt í þann
síma ef eitthvað er ekki eins og það
á að vera, varðandi dreifingu, efnis-
val o.fl.
■<
SKINFAXI
25