Skinfaxi - 01.06.1978, Side 13
ÞRASTASKÓGUR
Stóreign ungmennafélags íslands
X
Horft til baka af fyrstu hæðinni, séð ofan á
veitingaskálann or SoRÍð. Ingólfsfjall lengst til
hægri. Selfoss er í þá átt sem krossinn er.
Um Þrastaskóg hefur oft verið rætt og
ritað. Samþykktir hafa verið gerðar á
þingum UMFÍ, nefndir verið skipaðar milli
þinga jafnt sem á þingunum sjálfum allt í
þeim tilgangi að efla, bæta og nýta þessa
eign ungmennafélaganna. Stórhuga áform
hafa litið dagsins ljós, sum þeirra hafa
komist svo langt að birtast á prenti, önnur
jafnvel örlítið lengra, en flestum er það
sameiginlegt að hafa kafnað í fæðingunni.
Hinn almáttugi áhrifavaldur þegar stór-
huga áform eru annars vegar — fjármagns-
skorturinn — hefur átt stærstan þátt í þess-
ari kæfingu, þótt eflaust komi fleira til.
Ekki má skilja orð mín svo, að ekkert hafi
verið gert í Þrastarskógi frá því að hann
komst í eigu UMFÍ 1911, en hins vegar er
það ljóst að það sem þar hefur verið áorkað
hefur að mestu verið bundið atorku og
elju, einstakra áhugamanna innan
hreyfingarinnar sem borið hafa hag
skógarins fyrir brjósti frekar en að um sam-
stillt átak heildarinnar hafi verið að ræða.
Hvað býður Þrasta-
skógur upp á í dag?
Því fer ekki fjarri að stundum hvarfli að
sá grunur að þorri ungmennafélaga, a.m.k.
af yngri kynslóðinni, viti næsta lítið um
tilveru Þrastaskógar og eignaraðild ung-
mennafélaganna í honum. Þeir sem lesa
Skinfaxa eru aðeins litill hluti af heildinni,
en þeim fer fjölgandi sem betur fer, og í
þeirri von að þeir sem að hann lesa segi
öðrum frá skal eftirfarandi upplýst:
Staðsetning:
Þrastaskógur er 45 hektara landssvæði
austur við Sog, nánar tiltekið í 8 km fjar-
lægð frá Selfossi ef ekið er í áttina upp að
Laugarvatni um Grímsnes.
Þegar komið er yfir Sogsbrúna verður
fyrir á vinstri hönd fordyri skógarins með
veitingaskálann Þrastalund í forgrunni.
Veitingaskáli þessi er eign UMFÍ en leigður
SKINFAXI
13