Skinfaxi - 01.06.1978, Side 20
KARLAR
100 m.
Angantýr Jónasson HVÍ og Jón Þ. Sverrisson UMSK
munuberjast um fyrsta sætið. Við þriðja sætið verður
að setja stórt spurningarmerki en þeir er koma til
með að láta að sér kveða eru liklega Pétur Pétursson,
UÍA, Friðjón Bjarnason UMSB, Jón Benónýsson og
Jakob Sigurólason.
100 m hlaup
1. Angantýr Jónassson, HVÍ.
2. Jón Þ. Sverrisson, UMSK.
3. Pétur Pétursson, UÍA.
400 m.
Til þess að sigra i 400 m á landsmóti þarf að hlaupa
undir 50 sek. Stefán Hallgrímsson er sigurstrangleg-
astur, en fær eflaust harða keppni frá Jóni Diðrikssyni
UMSB ef Jón hleypur. Jakob Sigurólason mun hafa
æft vel í vetur og er því mjög líklegur i þriðja sæti, ef
ekki oftar. Jakob hefur einstakt keppnisskap.
400 m hlaup.
1. Stefán Hallgrímsson, UÍA.
2. Jón Driðriksson, UMSB.
3. Jón Þ. Sverrisson, UMSK.
800 m.
Ný grein á landsmóti. Jón Diðriksson ætti að vera
öruggur sigurvegari. Stefán Hallgrímsson ætti að vera
jafnöruggur i annað sætið. Steindór Tryggvason UÍA,
verður þriðji.
800 m hlaup.
1. Jón Diðriksson, U MSB.
2. Stefán Hallgrímsson, UÍA.
3. SteindórTryggvason, UÍA.
1500 m.
Jón Diðriksson, Steindór Tryggvason og Ágúst Þor-
steinsson berjast um annað sætið. Hafa þeir báðir æft
mjög vel í vetur.
1500m hlaup.
1. Jón Diöriksson, UMSB.
2. Ágúst Þorsteinsson, UMSB.
3.Sleindór Tryggvason, UÍA.
5000 m.
Landsliðsmaðurinn Ágúst Þorsteinsson verður
öruggur sigurvegari. En um hin verðlaunasætin er
spurning. Spáin er: Steindór Tryggvason UÍA nr. 2 og
Gunnar Snorrason nái þiðja sætinu á sinum frægu
landsmótsendaspretti.
5000 m hlaup.
1. Ágúst Þorsteinssön, UMSB.
2. Gunnar Snorrason, UMSK.
3. Emil Björnsson, UÍA.
110 m. grindahlaup.
Um fyrsta sætiðerengin spurning.en unt annaðsætið
gæti orðið um uppgjör að ræða á milli sigurvegarans
frá 1975, Hafsteins Jóhannessonar, og hins unga tug-
þrautarmanns, Þorsteins Þórssonar, UMSS.
110 nt grindarhlaup.
l.Stefán Hallgrimsson, ÚÍA.
2. Hafsteinn Jóhannesson. UMSK.
3. Þorsteinn Þórsson. UMSS.
4X100 m.
Hinir frísku Vestfirðingar (sveit HVÍ) ætti aðfara létt
með sigur i 4x100 m boðhlaupi. Um annað sætið
verður barátta milli HSÞ, UMSK, óþekktar stærðir
cru UÍA, UMSSog HSK.
4 X100 m boðhlaup.
I.Sveit HVÍ.
2. Sveit UMSK.
3. Sveít HSÞ.
lOOOm boðhlaup.
HVÍ, UÍA, HSÞ, UMSK. Gæti víxlast á marga vegu.
fer mjög mikið eftir þvi hvernig staðan verður.
Spá
HSÞ, HVÍ, UÍA.UMSK.
1000 ni boðhlaup
1. Sveit UÍA
2. Sveit HVÍ
3. Sveit UMSK.
Langstökk.
Jón Oddsson og Stefán Hallgrimsson munu heyja
harða baráttu um sigurinn. Aðrir liklegir verðlauna-
menn eru Sigurður Hjörleifsson HSH. sem hefur
hafið æfingar á ný og hinn kraftmikli Rúnar Vilh-
jálmsson, UMSB.
Langstökk.
1. JónOddsson, HVÍ.
2. Sigurður Hjörieifsson, HSH.
3. Hilmar Pálsson, H VÍ.
20
SKINFAXI