Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.06.1978, Qupperneq 22

Skinfaxi - 01.06.1978, Qupperneq 22
Þjónustumið stöð U.M.F.Í Senn líður að því að aðsetur skrifstofu UMFÍ flytjist í hið nýja húsnæði að Mjölnisholti 14. Verður sá flutningur sennilega um garð genginn þegar þessar línur koma fyrir augu lesenda en ætlunin er að greina frá opnun þjónustu- miðstöðvarinnar í næsta tbl. í máli og myndum. Eins og fram kom í viðtali við Pálma Gíslason í 1. tbl. þessa árgangs er það ætlunin að fjármagna kaup húseign- arinnar að mestu leyti með frjálsum fram- lögum. Fjársöfnunin hefur gengið þokka- lega til þessa, þótt enn vanti verulega á að það fjármagn, sem vænst var að fá á þennan hátt hafi fengist. Nú hafa safnast um 3,4 milljónir en húsakaupanefnd gerði sér vonir um að ná 10—12 millj. með frjáls- um framlögum. Stærstur er hluti sveitar- félaga enn sem komið er eða 1255 þúsund síðan koma kaupfélög og einstaklingar 901 þúsund. 776 þúsund hafa komið frá ung- mennafélögum, en það vantar nokkuð mikið upp á að öll félög hafi látið eitthvað af hendi rakna. Ekki er til þess ætlast að um verulegar upphæðir sé að ræða en aðal- áherslan lögð á það að sem flestir verði með. Vitað er um að sums staðar hyggja ungmennafélög á sérstakar fjáröflunarleiðir í þessu sambandi. Helmingur aðildarsambanda og félaga með beina aðild að UMFÍ hefur sent fram- lag til húskaupasjóðs og nemur upphæðin rúmlega hálfri milljón. Yfirlit yfir þá aðila sem lagt hafa fram fé í húskaupasjóð 31. maí 1978 fylgir hér með. Samband. Fclan UMSK. 50.000 Breiöablik 50.000 Afturelding 25.000 UMSB 25.000 Borg 20.000 Haukar 10.000 HSH. íf. Miklah.hr. 10.000 Umf. Grundfirö. 25.000 Umf. Staöarsv. 20.000 Umf. Árroði 10.000 UDN Umf. Stjarnan 10.000 HHF Höröur 10.000 HVÍ 100.000 Vorblómið 30.000 HSS. USVH. Umf. Víðir 25.000 USAH. UMSS 50.000 Umf. Fram 50.000 Umf. Geisli 10.000 Umf. Glóðaf. 15.000 UMSE 50.000 Dagsbrún 50.000 HSÞ 50.000 Tjörnes 5.000 Mfvctningur 50.000 Eillfur 25.000 Efling 20.000 Völsungur 10.000 UNÞ 30.000 Leiru Heppni 25.000 Afturelding 5.000 22 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.