Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.06.1978, Qupperneq 27

Skinfaxi - 01.06.1978, Qupperneq 27
Frá Héraðssambandi Vestur-ísfirðinga Héraðsþing HVÍ var haldið laugar- daginn 3. júlí síðastliðinn í félagsheimilinu á Þingeyri. Þingið sátu fulltrúar frá öllum ungmennafélögum innan sambandsins. Gestir þingsins voru Hafsteinn Þorvalds- son form. UMFÍ og Sigurður Geirdal fram- kvæmdastjóri UMFÍ, en hann hafði í vikunni fyrir þing heimsótt allar stjórnir félaga á sambandssvæðinu sem eru sex að tölu. Ennfremur voru oddviti Þingeyrar- hrepps, Þórður Jónsson, og sveitarstjóri, Jónas Ólafsson, gestir þingsins. Á þinginu voru samþykktar ýmsar merkilegar tillögur varðandi starfsemi H VÍ. Veigamestar voru mótaskrá frjálsra íþrótta 1978, um starfrækslu ungmennabúða að Núpi frá 20. júní—9. júlí fyrir börn á aldrinum átta til þrettán ára og um sam- vinnu HVÍ og sveitarfélaganna við ráðningu æskulýðsfulltrúa sýslunnar. Auk þess má nefna tillögur eins og, að ráðinn verði þjálfari til sambandsins, haldið verði dómaranámskeið í knattspyrnu, um þátt- töku HVÍ í landsmóti UMFÍ að Selfossi og um skipulagningu hópferðar í því sam- bandi, áskorun til sveitarfélaga að þau beiti sér fyrir stórátaki í uppbyggingu íþróttamannavirkja á næsta kjörtímabili. Að lokum má nefna það að héraðsþingið lýsti yfir ánægju sinni með frumkvæði Landverndar um hreinsunarvikur og skoraði þingið á aðildarfélög sambandsins að láta ekki sitt eftir liggja í því sambandi. Héraðsmót HVÍ verður haldið að Núpi 8.-9. júlí og er stefnt að því að þangað verði boðið þekktu frjálsíþróttafólki. Stjórn HVÍ skipa: Aðalstjórn: form. Jón Guðjónsson, Veðrará. Gjaldk. Ásvaldur Guðmundsson Ingjaldssandi. Ritari. Guðm. Steinar Björg- mundsson Kirkjubóli. Varastjórn: Varaform. Hilmar Pálsson Þingeyri. Gjaldk. Guðrún Sölvason Flat- eyri. Ritari Guðrún Hauksdóttir Suðureyri. Endurskoðendur: Bergur Torfason, Felli og Páll Pálsson, Þingeyri. Með bestu kveðju frá HVÍ. Jón Guðjónsson, form. Veðrará. UIA — punktar Metsala var á miðum í Landshappdrætti UMFÍ sl. haust hjá U.Í.A. 1211 miðar voru seldir á Austurlandi. Samt sem áður féll enginn vinningur til Austfirðinga, hverjum sem slíkt ranglæti er að kenna. Verður að vona að uppskeran verði meira í samræmi við afköstin í næsta landshappdrætti. SKIIMFAXI 27

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.