Skinfaxi - 01.10.1978, Qupperneq 5
UMFI
í dag 4. nóvember 1978 tekur UMFÍ til
formlegra nota Þjónustumiöstöð UMFÍ í
húsnæði að Mjölnisholti 14 í Reykjavík.
Merkum áfanga er náð í sögu samtak-
anna sem ætla má að leiði af sér stóraukna
þjónustu við sambandsfélögin, og skapi
þeim og forustumönnum þeirra betri að-
stöðu til vinnu og ýmisskonar útréttinga í
höfuðborginni.
Félagsheimili UMFÍ að Mjölnisholti 14
á að vera lifandi miðstöð ungmennafélags-
starfs af öllu landinu, þar sem forustumenn
og starfslið UMFÍ munu eftir bestu getu
leggja rækt við þjónustuþáttinn. Þar sem
ungmennafélagar af öllu landinu munu
hittast til samhæfingar og viðræðna um
ýmiss sameiginleg verkefni hreyfingarinn-
ar. Þar sem forustumenn héraðssambanda
og einstakra ungmennafélaga, munu fá
vinnuaðstöðu og jafnvel leiðsögn við úr-
lausn ákveðinna verkefna o.fl., o.fl.
Við vonum að íþróttafólk okkar og aðrir
starfshópar félaganna leggi leið sína hingað,
og þótt ekki verði boðið til veislu hverju
sinni, geti þeir verið vissir um að þeir eru
auðfúsir gestir, og eiga hérna heimili að að-
stöðu.
í fyrsta skipti í sögu samtakanna fáum
við húsnæðisaðstöðu sem innréttuð er með
þarfir þjónustumiðstöðvarinnar í huga, en
ljóst er að þetta er aðeins byrjunaráfangi,
SKINFAXI
í eigið húsnæði
sem innan tíðar mun leiða af sér þörf á mun
rýmra húsnæði.
Húsnæðið og skipan þess
í hinu nýja Félagsheimili UMFÍ sem er á
þriðju hæð að Mjölnisholti 14 er sameigin-,
legur rúmgóður stigagangur með öðrum
íbúum hússins, en í kaupsamningi er selj-
anda eignarinnar skylt að standsetja hann á
sinn kostnað.
Á stigapalli framan við inngang er rúm-
góð aðstaða og björt. Síðan er gengið inn í
ágæta móttökuaðstöðu (afgreiðslu), þar eru
tvö snyrtiherbergi og steypibað á vinstri
hönd, en innst í móttöku aöstaða fyrir
skrifstofustúlku, sem annast almenna af-
greiðslu, símavörslu og vélritun.
Til hægri við hliðargang er fatahengi, og
tvö herbergi sem segja má að séu einskonar
„Mennta og menningarmáladeild” höfuð-
5