Skinfaxi - 01.08.1979, Page 17
Snæfellingar tóku við keflinu á sýslu-
mörkum Dala- og Snæfellsnessýslu á
Skógarströnd. Það var sýslumaður
Snæfellsness og Hnappadalssýslu, Andrés
Valdimarsson sem hljóp fyrsta sprettinn,
en næstur honum hljóp hinn kunni lang-
hlaupari þeirra Snæfellinga, Daníel
Njálsson bóndi á Breiðabólsstað á Skój*-
arströnd. Leið hlauparanna lá síðan eftir
Skógarströndinni uns komið var að Hey-
dalsafleggjara en þar var beygt og hlaupið
yfir Snæfellsnessfjallgarðinn. Að ekki var
hlaupið utar á Nesið vakti undrun íbúa
Snæfellsness sem hefðu ekki talið það eftir
sér að bæta við nokkrum tugum kílómetra
til þess að fleiri gætu fylgst með. En stjórn-
endur hlaupsins hafa vafalaust haft sínar
ástæður fyrir þeirri hlaupaleið sem valin
var.
Veður var hið fegursta meðan á hlaup-
inu stóð þennan júnídag, sólskin og
hægur norðanvindur. Af 12 félögum inn-
Hér hlcypur Stefán Ásgrtmsson f St&ru-þúfu f Mikla-
holtshreppi með keflið. Fylgdarbfll FRI er spölkorn á
eftir.
Þetta hlýtur að hafa verið löglegt handaband.
SKINFAXI
17