Skinfaxi - 01.12.1979, Qupperneq 3
SKINFAXI
Tímarit Ungmennafélags tslands — LXX árgangur — 6. hefti 1979.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gunnar Kristjánsson. — Út koma 6 hefti á ári.
Jajhvœgi skal ríkja
Styrkur ungmenna- og íþróttahreyfingarinnar í landinu felst í því og
mun ávallt byggjast á því hve margir ötulir og hæfir forystumenn koma til
starfa í nafni hreyfingarinnar.
Þó skiptir það höfuðmáli að gott samstarf ríki meðal forystumanna á
hverjum tíma og að þeir gangi samstilltir til leiks.
Við þurfum að velja og afmarka starfssvið félaganna í heild. Gera lýðn-
um ljóst að hverju starfað er og fyrir hverja og ganga síðan hreint til verks,
allir sem einn.
í félagsstarfi þarf að velja verkefni sem bæði falla og hæfa fólki yngra
sem eldra og hafa gildi fyrir mannlífið og þjóðfélagið, þessi atriði þurfa að
vera leiðarljós þegar félagsstarf er skipulagt. í félagsstarfi er fengist við
verkefni sem maður hefur ánægju af og gerir af frjálsum vilja í frístundum.
Slíkt er mikilvæg lífsfylling, og vegur líkamshreyfing og það að leika sér þar
þungt að mínu mati.
Markmið í lífinu svo sem hugsjónir um að gera heiminn betri, vinna
landi og þjóð sem mest gagn fara því miður ekki nógu hátt, en hitt virðist
miklu vinsælla sem nefnist gróðahyggja og einstaklingshyggja. Vitað er að
allir menn búa við takmörk, hugmyndaleg, þekkingarleg, tilfinningaleg og
hæfnisleg. Hæfileikar manna eru á mismunandi sviðum og hver einstakl-
ingur hefur hæfileika sem hann einn getur nýtt og hver einstaklingur getur
SKINFAXI
3