Skinfaxi - 01.12.1979, Side 9
sér til gamans og heilsubótar ættu ekki að
nota skó með Iöngum tökkum.
Jafnvel hættulitlar greinar eins og lang-
hlaup er hægt að stunda svo ákaft, að
álagsskaðar komi á fætur. Á slíku er allt-
af hætta, þegar æft er fyrir harða keppni
og stefnt að metum.
En einkum ber að vara alvarlega við því
að nota lyf til að auka árangur. Þetta er
að sjálfsögðu ólöglegt og andstætt anda
íþróttanna, en getur auk þess skaðað
heilsuna og valdið dauðsföllum.
Þolþjálfun er annars vandalaust að
stunda með þeirri forsjá, að hún hafi góð
áhrif á heilsufar og líðan manna og valdi
ekki tjóni. Og enginn sem byrj-r að stunda
þolþjálfun ætti að verða svikinn af áhrif-
um hennar á líðan og heilsufar.
Heim ildir:
1. T.D. Noakes og L.H.Opie: Thc Cardio-
vascular Risks and Benefits of Exercise.
Practitioner, 288, vol 216,1976.
2. Kristján T. Kagnarsson: Líkamsæfingar
og endurhæfing kransæðasjúklinga.
Læknablaðið, 147, 7.-9. tbl. 1976.
3. J.N. Morris, J.W. Marr, D.G. Clayton:
Diet and Heart, Brit. Med. Journ. 1307, vol
2,1977.
4. H. Keen et al.: Nutrient intake, adiposity
and diabetes. Brit. Med. Journ. 655, vol 1,
1979.
5. Jóhannes Sæm undsson: Þolpróf, súrefnis-
taka. íþróttablaðið, 51, 1. tbl. 1978.
6. Gunnar Sigurðsson: Æðakölkun og
áhættuþættir. Læknablaðið, 65, 2. tbl. 1978.
ÞRASTASKOGUR
Á síðasta þingi UMFÍ að Stórutjarnaskóla
var eftirfarandi tillaga varðandi Þrastaskóg
samþykkt:
31. þing UMFÍ haldið að Stórutjarnaskóla
samþykkir að fela viðtakandi stjórn UMFÍ að
vinna ötullega að málefnum Þrastaskógar á
næsta kjörtímabili, m.a. á grundvelli fyrri
samþykkta sambandsþinga. Leggja ber áherslu
á heildarskipulagningu svæðisins í Þrasta-
skógi, með það fyrir augum að hægt verði að
hafa ungmenna- og æfingabúðir á vegum
UMFÍ og héraðssambandanna. Þingið heimil-
ar stjórn UMFÍ að kjósa þriggja manna nefnd í
þetta verkefni með tilliti til fjárhagsstöðu
hreyfingarinnar, og möguleika á fjáröflun til
framkvæmda í skóginum.
Samþykkt samhljóða.
Hvað hefur gerst síðan? Við leituðum frétta
hjá Sigurði Geirdal framkvæmdastjóra UMFÍ.
Síðan þessi tillaga var samþykkt hefur það
helst gerst í málinu að nefndin hefur verið
skipuð og eru í henni þeir Hafsteinn Þorvalds-
son, Pálmi Gíslason og Páll Aðalsteinsson.
Nefndin hefur haldið einn fund til að ræða
verkefni sitt og setja sig inn í hina einstöku
þætti málsins.
Nefndinni kom saman um að kynna sér
kostnaðarhlið þess að reisa hús fyrir sumar-
búðir og slíka starfsemi í skóginum og er nú
unnið að því að útvega teikningar og hug-
myndir að því og einnig ræddir ýmsir mögu-
leikar á því að halda kostnaði niðri.
Nefndin hefur einnig farið skoðunarferð um
skóginn til að átta sig betur á þvi hvaða verk-
efni þurfa að hafa forgang. Þá skoðaði nefnd-
in hús sem Selfossbær auglýsti til sölu, ef þar
skyldi leynast möguleiki á að koma upp ódýru
húsnæði á fljótlegan máta í skóginum, en ekki
þótti kosturinn álitlegur eftir nánari skoðun.
Vegna mikillar óvissu um fjármál UMFÍ á
næsta ári hefur nefndin farið sér hægt varð-
andi alla ákvarðanatöku en vinnur sem fyrr er
sagt að því að safna hugmyndum og kanna
lauslega hugsanlegar fjáröflunarleiðir. Tæp-
lega er að vænta mikilla tíðinda af þessum vett-
vangi fyrr eneftir áramót.
SKINFAXI
9