Skinfaxi - 01.12.1979, Qupperneq 13
2. deild
í keppni 2. deildar voru 5 héraðssam-
bönd og eitt félag af íþróttabandalags-
svæði. K.A. frá Akureyri sigraði nokkuð
örugglega. UMSB varð jafn örugglega í
öðru sæti og tefldi fram jöfnu og sterku
liði. Um þriðja sætið kepptu HSK og
UMSE og höfðu Skarphéðinsmenn betur.
UMSS hreppti 5. sætið en UNÞ var með
áberandi lélegasta Iiðið í keppninni og féll
því í þriðju deild.
Borgfirðingar veittu Akureyringum
óvænt harða keppni fyrri daginn en náðu
ekki jafn góðum árangri seinni daginn.
Borgfirðingar eiga nú orðið mjög fram-
bærilegt lið og eru aðeins veikir hlekkir í
grindahlaupum og stangarstökki.
Skarphéðinsmenn sem voru í 1. deild í
fyrra eiga greinilega alltaf erfitt með að ná
sínu sterkasta liði saman þegar þarf að
fara út fyrir sambandssvæði HSK. Þannig
var það einmitt nú og Ientu því Skarphéð-
insmenn neðar en efni stóðu til.
Eyfirðingar og Skagfirðingar stóðu vel
fyrir sínu, eða eins og búast mátti við. í
þessi tvö lið vantar breidd, þau eiga mjög
frambærilega einstaklinga en síðan standa
aðrir liðsmenn langt að baki.
Norður-Þingeyingar komu mest á óvart
i 2. deild, og þvi miður, fyrir lélega
frammistöðu. Þingeyingar mættu ekki
með nema hluta af sínu besta keppnis-
fólki, og slíkt er ekki hægt að leyfa sér í
keppni sem þessari. Hlutskipti Norður-
Þingeyinga var því fall niður í næstu deild
fyrir neðan líkt og nágrannar þeirra í
Suður-Þingeyjasýslu.
Lokastaðan í 2. deild varð þessi:
Nr. 1. KA
— 2. UMSB
— 3. HSK
— 4. UMSE
— 5. UMSS
— 6. UNÞ
157 stig
123 stig
101 stig
97 stig
84.5 stig
40.5 stig
3. deild
Keppnin fór fram að Breiðabliki á Snæ-
fellsnesi. Austfirðingum (UÍA) tókst nú
það sem þeim mistókst í fyrra, að sigra 3.
deildarkeppnina. Þeir höfðu umtalsverða
yfirburði og sem dæmi hve lið þeirra var
sterkt og jafnt þá náðu keppendur liðsins
1. eða 2. sæti í öllum greinum keppninn-
ar.
Snæfellingar hrepptu 2. sætið og eru nú
heldur á uppleið eftir afar lágkúruleg
fjögur síðustu árin í frjálsíþróttum.
Ágætt starf þeirra í sumar hefur strax
skilað árangri. Nú er bara að halda
ótrauðir á brattann.
Austur-Húnvetningar voru ekki langt
að baki heimamönnum og eru þeir greini-
lega einnig á uppleið og unglingastarf
síðustu ára e.t.v. farið að skila sér.
Dalamenn og N-Breiðfirðingar komu á
óvart með ágætri þátttöku sinni.
Árangur sumarstarfsins er greinilegur.
Að senda lið í keppnina og það með all
sæmilegum árangri er átak sem vert er að
taka eftir.
Þátttaka USVH var heldur slök og von-
andi að Vestur-Húnvetningar undirbúi sig
betur næst fyrir keppnina.
Lokastaðan í 3. deild varð þessi:
Nr. 1. UÍA
— 2. HSH
— 3. USAH
— 4. UDN
— 5. USVH
89 stig
69.5 stig
60 stig
38.5 stig
24 stig.
Lokaorð
Þessi stutta úttekt á Bikarkeppninni
vona ég að verði einhverjum umhugsunar-
efni. Ef svo reynist veit ég að ekki liður á
löngu uns viðeigandi ráðstöfunum verður
hrundið í framkvæmd, til að auka áhug-
ann, bæta skipulagið, og þar með stór-
bæta árangurinn.
Setjið stefnuna á brattann.
SkllMFAXI