Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.02.1980, Qupperneq 7

Skinfaxi - 01.02.1980, Qupperneq 7
Göngudagur ungmennafélaganna Á fyrsta fundi nýkjörinnar stjórnar UMFÍ þann 21. okt. s.l. var samþykkt svohljóðandi tillaga: Á undanförnum árum hafa augu manna opnast fyrir nauðsyn almenningsíþrótta og útivistar þar sem öll fjöl- skyldan getur verið þátt- takandi. Ungmennafélag Islands vill hvetja fólk til slíkrar þátt- töku. Gönguferðir um landið er heppileg leið til útivistar, til hollustu, til að kynnast landinu betur og til að efla tengsl fjölskyld- unnar. Ungmennafélag Islands hefur því ákveðið að koma á „göngudegi ungmenna- félaganna” (göngudegi fjöl- skyldunnar) laugardaginn 14. júní 1980. Hvert ungmennafélag skal í upphafi skipa starfshóp er velji gönguleið, helst í nág- renni félagssvæðis. Göngu- leið mætti hugsa sér 2—7 tíma gang. Hvert félag getur valið fleiri leiðir. Starfshópurinn skrifi leiðar- lýsingu og verði hún fjöl- rituð. Mun UMFÍ aðstoða þau félög er þess óska. Ferðir þessar verði vel aug- lýstar og fólk kvatt til göngunnar og verði þær öllum opnar. Frá upphafi íslandsbyggðar hafa íbúar þessa lands þurft að ganga mikið. Hvort fólk hefur fyrr á öldum farið í langar ferðir að nauðsynja- lausu er óvíst, en 1910 er skrifað í Skinfaxa um fjall- göngur og þar stendur m.a.: „Einhver allra besta og hollasta skemmtunin er sú að skoða fegurð landsins, einkum á sumrin. Ganga út um holt og mela, hamra og hraun, brekkur og runna og skoða plöntur og enda steina. Ganga upp á fjöll til þess að fá fagurt útsýni og sjá fallegar plöntur. Þær gróa oft á efstu tindum. Mörg fjöll hérá landi eru vel löguð til þessa.” Þegar bílar urðu almenn- ingseign var eins og menn gleymdu að ganga. Auðvitað voru til undantekningar, en alltof margar skemmti- og úti- vistarferðir urðu aðeins akstur í ryki. Rétt hlaupið út til að kaupa pylsu og kók, eða smella af mynd af fossi eða fjalli, já jafnvel út um bíl- gluggann. Eitt er þó sem mjög hefur skort en það eru góðar leiðar- lýsingar á heppilegum göngu- leiðum. Því nokkur sannleikur er í orðum Tómasar Guð- mundssonar er hann yrkir: landslag yrði lítils virði ef það héti ekki neitt. Þessi viðleitni okkar er ein- mitt í þá átt að bæta hér úr. Að fólk safni saman í stutta lýsingu því helsta sem fyrir augun ber á þeirri leið sem valin er. Það sem fram þarf að koma í slíkri leiðarlýsingu er: 1. Lýsing gönguleiðar. 2. Örnefni 2. Jarðfræði 4. Saga 5. Þjóðsögur, þjóðtrú. Nausynlegt er að starfs- hópar verðir valdir tímanlega og Þjónustumiðstöð UMFl mun eftir bestu getu afla upp- lýsinga um bækur og rit er að gangi mega koma ef þess er óskað. Rétt er að geta þess að í lok leiðarlýsingar er nauðsyn- legt að geta þeirra rita er heimildir eru fengnar úr. Góðir ungmennafélagar; stjórn UMFÍ hvetur alla góða og gegna íslendinga til þátt- töku þann 14. júní. Verðum öll með í Göngudegi ungmennafélaganna”. PG. SKINFAXI 7

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.