Skinfaxi - 01.02.1980, Page 8
FRÁ ÞINGI UMSB
58. þing UMSB var haldið
í Brautartungu í Lundarreykj-
ardal laugardaginn 9. febrúar
síðastliðinn.
Þingið var fjölsótt og starfs-
samt í besta lagi svo sem
venja er hjá þeim Borgfirðing-
um. Kristófer Kristinsson for-
maður flutti starfsskýrslu
stjórnarinnar, sem bar með
sér mikið og vaxandi starf
UMSB, og hinna einstöku fé-
laga þess.
Fulltrúar UMFÍ á þinginu
voru þeir Pálmi Gíslason, Sig-
urður Geirdal og Jón Guð-
björnsson. Fluttu þeir fréttir
af starfi UMFÍ og gerðu grein
fyrir þeim málum sem fram-
undan eru hjá UMFl. Á þing-
inu voru tveir félagar úr
UMSB sæmdir starfsmerki
UMFÍ fyrir störf á sambands-
svæðinu, en það voru þeir
Vigfús Pétursson og Bjarni
Skarphéðinsson.
Á þinginu mætlu einnig
þeir Arnaldur Bjarnason sem
flutti erindi um erindrekstur
ÍSÍ á Vesturlandi 1979, og
Reynir Karlsson æskulýðsfull-
trúi ríkisins. Þá komu þeir
Sveinn Björnsson og Sigurður
Magnússon frá ÍSÍ og sýndu
kvikmynd um íþróttahátíð ÍSÍ
1970 og ræddu um fram-
kvæmd næstu íþróttahátíðar
1980.
Pálmi gerði „Göngudag
fjölskyldunnaP’ að umræðu-
efni á þinginu og var sam-
þykkt tillaga um að taka
myndarlega þátt í þeirri fram-
kvæmd. Við það tækifæri varð
til eftirfarandi vísa.
A göngudegi göngum við
gaman er að skálma.
Afturá bak og út á hlið
eftirforskrift Pálma.
Gestgjafi þingsins Dagrenn-
ing í Lundarreykjadal, sá vel
um allar þarfir þingfulltrúa
og þóttu veitingar allar þeim
til mikils sóma.
Formaður UMSB Kristófer
Kristinsson baðst undan
endurkjöri og voru honum og
Sparisjóðurinn er
lánastofnun
allra
Suðumesja-
manna
SPARISJÓÐURINN í KEFLAVIK
SUÐURGÖTU 6 - SÍMI 2800.
SPARISJÓÐURINN NJARÐVÍK
HÓLABRAUT 15 - SÍMI 3800.
8
SKINFAXI