Skinfaxi - 01.02.1980, Blaðsíða 11
Félagsmálaskóli Ungmenna-
félags íslands var stofnaður 1.
febrúar 1970 og er því orðinn
10 ára gamall.
Fyrir þann tíma höfðu mörg
ungmennafélög gert tilraunir
með félagsmálafræðslu, þó
nær eingöngu námskeið í
fundarsköpum og ræðu-
mennsku. Þessi námskeið skil-
uðu nokkrum árangri en leið-
beinendaskortur takmarkaði
utbreiðslu þeirra. Þegar Ung-
uiennafélag íslands stofnaði
Félagsmálaskóla UMFf var
Því í raun ekki um nýtt starfs-
svið að ræða, heldur var verið
að taka gamlan starfsþátt,
auka við hann og aðlaga
breyttum aðstæðum.
Markmið
Starfsemi félagsmálaskólans
hefur eftirfarandi markmið:
1. Að gera þátttakendur hæf-
ari til þátttöku í félagslegu
starfi.
2. Að þjálfa fólk til félags-
legra forystustarfa.
3. Að veita fræðslu um ung-
mennafélagshreyfinguna.
4. Að beita sér fyrir aukinni
félagsmálafræðslu í skólum
landsins.
Stjórn skólans er í höndum
3 manna skólanefndar sem
skipuð er af sambandsstjórn
UMFÍ.
Námsefni
Framan af var skortur á
hæfum leiðbeinendum og
hentugu námsefni og háði það
starfi félagsmálaskólans. En
árið 1972 vann UMFÍ í sam-
starfi við Æskulýðsráð ríkisins
upp nýtt námsefni til kennslu
á félagsmálanámskeiðum.
Þetta námsefni er í tveimur
hlutum: Félagsmálanámskeið —
grunnstig, sem er almennt
undirstöðuefni, og Félagsmála-
námskeið — framhaldsstig, sem
er framhaldsefni og sérhæfðari
Framhald á bls. 18.
SKINFAXI
11