Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1980, Blaðsíða 13

Skinfaxi - 01.02.1980, Blaðsíða 13
Njálsbúð. Umf. Njúll Umf. Njáll í Vestur- Landeyjum varð 70 ára fyrir nokkru. Var haldið upp á af- rnælið með veglegu samsæti í Njálsbúð 8. des. síðastliðinn. Umf. Njáll var stofnað 21. nóv. 1909 og starfaði til 1940 að árunum 1932—33 undan- skildum. 1952 var félagið siðan endurvakið og hefur starfað til þessa dags. Núver- andi stjórn skipa: Haraldur Júlíusson formaður, Gunnar Hermannsson og Hulda Jónasdóttir. man eftir mér haft gaman að söng og reynt að reka upp hljóð öðru hvoru. Þú ert líka orgelleikari og söngstjóri? Það er mikið af því að það hefur vantað hér mann sem gæti tekið þetta starf að sér og af því að ég hafði aðeins feng- ist við að spila á hljóðfæri þá lenti ég í þessu. Hvernig samrýmist það að vera bóndi og bílstjóri með meiru og formaður ungmennafélags? Það samrýmist kannski illa að vera bóndi. En að vera skólabílstjóri og ungmenna- félagsformaður fer nokkuð vel saman. Maður er í miklum tengslum við fólkið, fer víða og hittir marga, á gott með að koma boðum og hafa sam- band við alla í sveitinni. Hvað er ungmennafélagið Njáll stórt félag? Það er nokkuð stórt miðað við félög hér um slóðir. Það eru 83 skráðir félagar. A ð hverju starfar félagið helst í dag? Stærsta verkefnið er stækk- un á félagsheimilinu Njáls- búð. Mest öll okkar starfsemi hefur farið í það síðan byrjað var á því. En auk þess höfum við stundað íþróttir og við eigum allgóðu íþróttafólki á að skipa í frjálsum íþróttum. Þá höfum við einnig haft kvöldvökur fyrir yngstu félag- anna í samvinnu við barna- skólann. Yfir vetrarmánuðina höfum við reynt að hafa eina kvöldvöku í mánuði og er þetta mjög vinsælt hjá krökk- unum. Við undirbúum alltaf skemmtiatriði á þorrablót sem kvenfélagið sér um að öðru leyti. Mjög góð samvinna er á milli þessara félaga. Okkar 13 Við hittum að máli, for- mann félagsins, Harald Júlíusson bónda í Akurey, °g unga upprennandi íþrótta- konu, Lóu Rúnarsdóttur. Þú hefur gaman að söng, Har- aldur? Já, ég hef frá því ég fyrst SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.