Skinfaxi - 01.02.1980, Side 18
Þetta námsefni hefur félags-
málaskólinn notað frá 1973,
auk sérefnis frá UMFÍ. Náms-
efnið er í stöðugri endur-
skoðun og hefur tekið ýmsum
breytingum.
Námskeið
Félagsmálaskólinn hefur frá
upphafi sinnt fjölþættri fé-
lagsmálafræðslu um allt land.
Félagsmálaskólinn er einn
stærsti aðilinn í félagsmála-
fræðslunni í landinu og sá
langstærsti þegar út fyrir
Reykjavíkursvæðið er komið.
Námskeið á vegum skólans
eru jafnan öllum opin og skól-
inn leggur verulega áherslu á
að reyna að mæta þörfum og
óskum ungmennafélaga o.fl.
alls staðar á landinu.
Á fyrstu 10 árum félags-
málaskólans hefur hann hald-
ið alls 228 námskeið með sam-
tals 4.027 þátttakendum. Flest
þeirra eru félagsmálanám-
skeið grunnstigs en mun færri
námskeið á framhaldsstiginu.
Þá hefur skólinn haldið nokk-
ur sérnámskeið ungmennafé-
lagshreyfingarinnar. Má þar
nefna námskeið fyrir fram-
kvæmdastjóra héraðssam-
banda, námskeið fyrir stjórn-
endur ungmennabúða og
námskeið fyrir leiðbeinendur í
þjóðdönsum. Að sjálfsögðu
hafa langflest félagsmálanám-
skeiðin verið haldin hjá ung-
mennafélögum og héraðssam-
böndum en einnig í skólum
og hjá ýmsum öðrum félög-
um.
Árangur
Félagsmálaskóli UMFÍ var
stofnaður til þess að gera ung-
mennafélaga hæfari til þátt-
töku í félagslegu starfi og til
að taka að sér forystustörf í
félögum. Þar sem námskeið
skólans eru jafnan öllum opin
hafa fjölmörg önnur félaga-
samtök og einstaklingar notið
góðs af starfi skólans.
Það er að vísu alltaf erfitt
að meta árangur af félags-
málakennslu en þó má sjá
greinilegan árangur skóla-
starfsins þar sem félagsmála-
námskeið hafa verið haldin,
t.d. í
a) meira framboði ungs fólks
til forystustarfa,
b) betri vinnubrögðum á
fundum og þingum ung-
mennafélagshreyfingarinnar,
c) þróttmeira félagsstarfi,
d) aukinni viðurkenningu á
gildi félagsmálafræðslunn-
ar meðal almennings og
stjórnvalda.
Á þessum 10 árum hafa all-
margir leiðbeinendur starfað
fyrir félagsmálaskólann, enda
byggir starf hans ekki síst á
nægum fjölda hæfra leiðbein-
enda.
Þess er að vænta að ung-
mennafélögin kosti áfram
kapps um að gera skólann
sinn sem best í stakk búinn til
þess að starfa í samræmi við
markmið skólans.
Guðmundur Guðmundsson.
Jajhréttið að
aukast
Ungmennafélögin munu vera
fyrstu félagasamtök á íslandi
þar sem konur eru gjald-
gengar til jafns við karla.
Kona hefur þó ekki setið í
stjórn UMFl um árabil. Úr
þessu var bætt á síðasta þingi
þegar Dóra Gunnarsdóttir var
kjörin í varastjórn.
18
SKINFAXI