Skinfaxi - 01.02.1980, Blaðsíða 29
Fréttapistill
úr Eyjafirði
Þótt sumarið ’79 hafi verið
bæði kalt og stutt, héldu ung-
mennafélagar sín íþróttamót
með hefðbundnum hætti.
UMSE réð Sigvalda Ingi-
mundarson sem frjálsíþrótta-
þjálfara, en hann hafði áður
þjálfað með ágætum árangri.
Af einstökum íþrótta-
mótum má geta um drengja-
mót og kvennamót er haldin
voru fyrri part sumars. Á
drengjamóti keppa drengir 18
ára og yngri en kvennamótið
er opið konum á öllum aldri.
Umf. Þorsteinn Svörfuður
varð stigahæst í drengjamót-
*nu með 35 stig. Sá einstakl-
'ngur er skar sig áberandi úr
var Árni Snorrason úr Umf.
Þorsteini Svörfuði en hann
sigraði í 5 greinum, 100 m
i'laupi á 11,9 sek., langstökki
6,01 m, þrístökki 11,81 m,
kúluvarpi 11,16 m og kringlu-
kasti 28,96 m.
I kvennamótinu varð Umf.
Skriðuhrepps stigahæst með
41 stig, vann með miklum
yfirburðum en næsta félag var
með 16 stig. Hólmfríður
Erlingsdóttir var atkvæðamest
keppenda að venju en hún
sigraði í 4 greinum: 100 m hl.
á 13,1 sek., í langstökki með
4,77 m, hástökki 140 sm og
800 m hl. á 2:46,9 mín.
Bændadagshlaup UMSE er
ávallt eitt af skemmtilegri
mótum sumarsins. Er þetta
víðavangshlaup og hlaupið í
mörgum flokkum pilta og
stúlkna. Stytsta vegalengd um
500 m en sú lengsta um 1500
m. Er mótið fór fram var
norðan gola og kalt, en þeir
yngstu létu það ekki á sig fá
og var þátttaka ágæt í öllum
flokkum.
Einstakir sigurvegarar urðu:
íslandsmeistarar í blaki
Blaklið Umf. Laugdæla. Aftari röð f.v.: Atli Eðvaldsson, Gylfi
Þorkelsson, Haraldur Geir Hlöðversson, Hreinn Þorkelsson, Halldór
Halldórsson. Fremri röð f.v.: Kjartan Lárusson, Lárentinus Helgi
Agústsson, Leifur Harðarson, Samúel Örn Erlingsson, Torfi Rúnar
Kristjánsson. Á myndina vantar Þorkel Þorkelsson og Torfa
Magnússon.
Umf. Laugdæla tekur að
venju þátt í 1. deild fs-
landsmótsins í blaki en
eins og flestir vita eru þeir
núverandi íslandsmeistar-
ar.
Að sögn Kjartans Lárus-
sonar ætla Laugdælir að
sjálfsögðu að verja titil
sinn á þessu ári. Staða
þeirra væri mjög góð, þeir
væru efstir í mótinu og
hefðu aðeins tapað einum
leik en 6 leikir væru eftir.
Umf. Laugdæla hefur
að auki tilkynnt þátttöku í
1. deild kvenna og 1. flokki
karla.
Skinfaxi óskar Laug-
dælum áframhaldandi vel-
gengni í íslandsmótinu.
SKINFAXI
29