Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.10.1986, Qupperneq 6

Skinfaxi - 01.10.1986, Qupperneq 6
Þolinmóðir andstæðingar Jón L. Árnason Á síðari árum hefur þeim sem eru alltaf reiðubúnir til þess að tefla skák, á öllum tímum sólarhrings, fjölgað verulega. Þetta eru þolinmóðustu skákmenn sem þekkjast - sjálfar skák- tölvurnar. Margir skákáhugamenn hafa orðið sér úti um slík verkfæri og hinir eru enn fleiri, sem eiga sér skákforrit, sem þeir lauma í einkatölvuna í vinnutímanum. svona þegar enginn sér til. Sá er þetta ritar hefur oft verið spurður um skáktölvur og styrkleika þeirra. Nú síðast, er ritstjóri þessa blaðs hafði orðið sér úti um skákforrit í Macintosh-tölvuna sína. Hann hafði orð á því að gaman væri að sjá stórmeistarann glíma við gripinn. Það varð úr að við mæltum okkur mót á Öldugötunni og afraksturinn gefur að líta hér á eftir. Sargon III heitir forritið, sem óskaði eftir því að fá að tefla við núg. Það er þekkt meðal skákáhugamanna og sjálfur hef ég nokkrum sinnum glímt við það. Og ég varð vitni að því er það skákaði starfsmönnum IBM á íslandi. Ég var skákstjóri á móti, þar sem tefldu sarnan sveitir úr deildum fyrirtækisins og ein sveitin var eingöngu skipuð tölvum. Tefldar voru 15 mínútna skákir og tölvusveitin gerði sér lítið fyrir og varð efst á mótinu. í hraðskákinni vilja mennskir menn oft leika af sér mönnum en það gerir tölvan ekki. Tölvusveitin tefldi "tekknískt" og af ískaldri yfirvegun. Smátölvumar geta einnig verið skeinuhættar. Sú sem varð efst á heimsmeistaramóti smátölva nú síðast er þýsk og heitir "Mephisto" - af henni finnast nokkur afbrigði. Einn stórmeistaranna, sem tefldi á Reykjavíkurskákmótinu síðasta, fór flatt á viðskiptum sínum við hana. Framan af stefndi reyndar í öruggan sigur stórmeistarans en í hróksendatafli sneri tölvan snilldarlega á hann og gat að endingu hrósað sér af sigri. Þessi tölva er nokkuð sterk og jafnframt skemmtileg að þvf leiti að við hana má tefla eins og hvem annan andstæðing. Leikur er framkvæmdur með því að þrýsta þeim manni sem leika skal léttilega á reitinn sem hann stendur á og svo aftur á þann reit sem hann er á leið til. Tölvan gefur svarleik sinn til kynna með því að blikka rauðu ljósi á þeim reitum sem breytingar verða á. En víkjum sögunni að skrifstofu UMFÍ á Öldugötu. Ætlunin var að tefla eina skák við Sargon III og birta hana með skýringum, sem gætu e.t.v. varpað einhverju ljósi á "hugsunarhátt" tölvunnar. Sargon hefur 9 styrkleika- stig. Á auðveldasta stiginu er hún aðeins 5 sekúndur með hvem leik en á því 9. og erfiðasta er umhugsunar- tíminn ótakmarkaður. Tími okkar var aftur á móti ekki eins rúmur og því tókum við þann kostinn að fara milliveginn. Stilltum gripinn á 5. styrkleikastig, sem merkir að hún leikur að jafnaði einn leik á tveggja mínútna fresti. í bæklingum er gefið upp að 30 leiki tefli hún á u.þ.b. 55 mínútum á þessu stigi. Hvítt: Jón L. Ámason Svart: Sargon III Philidor-vöm. I.e4 e5 2.Rf3 d6 Phildor-vömin, sem hefst með þessum leik, er sjaldséð í skákum meistaraflokksmanna. Það er að sjálf- sögðu ekki sök tölvunnar að hún skuli ekki tefla "gáfulegri" byrjun. Það er þeim að kenna sem hafa forritað hana. 3.Bc4 Það er góð regla er teflt er við tölvur að reyna að "koma þeim út úr teóríunni". Hér er 3.d4 algengasti leikurinn og í ljós kemur raunar að höfundar forritsins hafa ekki gert ráð fyrir öðrum möguleikum. 3.-Rc6 4.0-0 Rf6? í útreikningum sínum gerði Sargon nú aðeins ráð fyrir 5.Rc3 en hvítur á völ á mun öflugra framhaldi. 5.Rg5! d5 6.exd5 Rxd5? Betra var 6.-Ra5. Staðan er þekkt úr tveggja riddara tafli, eftir leikina l.e4 e5 2.Rf3 Rc6 3.Bc4 Rf6 4Æg5 d5 5.exd5 Ra5 o.s.frv. Glöggir lesendur sjá að í skákinni sem hér er til umfjöllunar hefur hvítur unnið leik, því að svartur fór fram með d-peð sitt í tveim stökkum. Fómin sem nú kemur er því enn sterkari heldur en í tveggja riddara tafli, en þó þykir hún einnig lofa góðu þar. 7.Rxf7! Kxf7 8.DÍ3+ Ke6 Sargon hefur séð í sínum útreikningum að hann nær að valda riddarann og þá hefur hann unnið lið. Þetta er einkennandi tölvu-hugsunar- háttur. Skákmaður með sæmilega reynslu myndi ekki hætta sér út á þetta svell ótilneyddur. Kóngurinn er úti á miðju borði og hvítu mennimir sækja nú að honum úr öllum áttum. Hér er Jón greinilega að leika sterkum leik. 6 Skinfaxi 5. tbl. 1986

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.