Skinfaxi - 01.10.1986, Side 14
Mikið starf hjá Umf. Vorboðanum
Texti og myndir: Valdimar Guðmannsson
Starfsemi Umf. Vorboðans á liðnu
sumri varð mun meiri en undanfarin ár.
Frjálsíþróttaæfingar voru einu sinni í
viku og var mæting mjög góð, þjálfari
var Þórhalla Guðbjartsdóttir íþrótta-
kennari.
Félagið tók einnig þátt í öllum
íþróttamótum sem haldin voru á
félagssvæði USAH.
Á göngudeginum gengu Vorboða-
menn upp á Síðuborg, þar kynnti
Friðgeir Kemp bóndi Lækjardal,
landslagið fyrir göngufólki.
Lítið er farið að skipuleggja
vetrarstarfið, en þó er ákveðið að hafa í
þ.m. eina frjálsíþróttaæfingu í viku á
Húnavöllum, einnig að leita eftir
samstarfi við skólayfirvöld um aukna
frjálsfþróttakennslu innan skólans.
Á síðast liðnu ári varð Umf.
Vorboðinn 70 ára. Það tók stjórn
félagsins nokkum tíma að ákveða með
hvaða hætti þessara tímamóta yrði
minnst. Lengi vel var uppi hugmynd
um veisluhöld og tilheyrandi, en slíkar
veislur eru dýrar og skilja ekki alltaf
mikið eftir handa framtíðinni, þá kom
sú hugmynd að hefja framkvæmdir við
að koma upp sæmilegu æfingasvæði á
félagssvæðinu, en þá aðstöðu hefur
mjög skort nú síðustu árin.
Byrjað var á þessari framkvæmd á
afmælisárinu og ýtt upp hluta að
vallarsvæði á Bakkakotsmelum. Þeirri
framkvæmd var síðan haldið áfram nú á
s.l. sumri, og lokið við að ýta upp
vallarstæði sem er 155 x 85 m. Einnig
var lokið við að þekja þann hluta
vallarins sem á að vera knatt-
spymuvöllur, stærð 100 x 62 m. Það
verk var allt unnið í sjálfboðavinnu,
eins og allt við vallargerðina sem hægt
er að vinna með handafli og
venjulegum landbúnaðartækjum.
Um 40 manns unnu að þessu verki
á einn eða annan hátt og sýndu þar og
sönnuðu að stærð sveitarfélaganna
skiptir ekki megin máli, heldur
félagslegur þroski þeirra sem sveitar-
félögin byggja.
íbúar þessara tveggja sveitarfélaga
sem félagssvæði Vorboðans nær yfir
(Vindhælis- og Engihlíðarhr.) er rétt
um 170 manns.
Á næsta ári er ráðgert að ganga frá
hlaupabrautum, það verða 4-6 hring-
brautir. Þegar því verkefni er lokið er
eftir að steypa kasthringi og
þekja það sem ekki fer undir hlaupa-
brautir.
Það er því ekki ótrúlegt að á 75 ára
afmæli félagsins getum við tekið til
Unnið við að setja þökur á nýja
íþróttavöllinn.
okkar fyrsta mótið í frjálsum íþróttum,
takist það vona ég að enginn sjái eftír
að hafa sleppt veisluhöldum, þegar
félagið varð 70 ára.
Því þá munum við vera búin að
skapa æskufólki okkar viðunandi
aðstöðu tíl æfinga og þá held ég að
árangurinn láti ekki á sér standa, og
Vorboðinn verði aftur það öfluga
íþróttafélag sem hann var þegar
Guðlaug Steingrímsdóttir og félagar
héldu uppi merki félagsins.
Að endingu vil ég senda öllum sem
lagt hafa Vorboðanum lið, bæði með
vinnuframlögum, þátttöku í
íþróttamótum og göngudeginum mínar
bestu þakkir og baráttukveðjur.
Ilittumst hress næsta sumar
Valdinmr Guðmannsson.
Stjórn Umf. Vorboðans skipa
nú:
Valdimar Guðmannsson, formaður.
Magðalena Jónsdóttir, gjaldkeri.
Björn Björnsson, ritari.
Kristján Frímannss. varaformaður.
Sigurður Ágústss. meðstjórnandi.
Hvílt sig frá vinnu við vallargerðina og fengið sér í svanginn
14
Skinfaxi 5. tbl. 1986