Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.10.1986, Side 15

Skinfaxi - 01.10.1986, Side 15
Guðmundur Páll Amarson Þegar frumkvæðið skiptir sköpum Frumkvæði er hugtak sem skiptir máli í brids ekki síður en skák. Oft ræður það úrslitum um örlög samnings hvor hefur frumkvæðið, sóknin eða vömin. Af þessu leiðir auðvitað að nauðsynlegt er að nýta sér frumkvæðið og gæta þess að tapa ekki "tempo" með letilegri spilamennsku. Lítum á tvö spil þar sem frumkvæðið skiptir sköpum: Suður gefur; allir í hættu. Norður 4 Á107 ÁDG76 D863 Suður Á83 DG K108 K7542 Vestur Norður Austur Suður - - - 1 lauf Pass 1 tígull 2 spaðar Pass Pass 4 lauf Pass 5 lauf Pass Pass Pass Vestur spilar út spaðatíu gegn fimm laufum suðurs. Hvernig er best að spila? Fyrst er að huga að því hvað ógnar samningnum. Það er augljóst: ef laufið er 3-1 er hætta á að gefa þar tvo slagi og hugsanlega einn á hjartakóng ef hann liggur í austur. Næst er að athuga hvernig best er að bregðast við þesari hættu. Nú er vissulega líklegra að austur eigi laufásinn eftir innákomuna, svo það sýnist skynsamlegt að fara inn á borðið á tígul og spila litlu laufi á kónginn. Þannig má komast hjá að gefa tvo laufslagi ef austur á ásinn blankan. En ef það kemur á daginn að vestur á laufásinn þriðja eða stakan er spilið að öllum líkindum tapað. Hann mun spila hjarta og þá verður svíningin að heppnast. Sem hún gerir varla, því eitthvað hlýtur austur að eiga fyrir ströglinu. Áætlunin hlýtur þess vegna að vera sú að reyna að komast hjá hjartasvín- ingunni. Og það er hægt með því að spila litlu laufi á drotmingu blinds í öðmm slag. Norður 4 Á107 ÁDG76 D863 Vestur 102 --------- 965432 43 ---- ÁG10 Suður Á83 DG K108 K7542 Vestur verður að gefa, því ella fær hann aðeins einn slag á lauf. Drottningin á því slaginn og nú er rétt að snúa sér að tíglinum. Vestur trompar þriðja tígul- inn og spilar hjarta. En hann er tempóinu of seinn, sagnhafi getur stungið upp ás og hent svo hjarta- drottningunni niður í tígul. Gefur því aðeins tvo slagi á lauf. Vestur þurfti að hitta á hjarta út til að bana samningum, sem er all erfitt efdr spaðasögn austurs. Frumkvæði varnar- innar fór því fyrir lídð í þessu spili. Baráttan um frumkvæðið er enn meira áberandi í grandsamningum. Þeir eru mjög oft kapphlaup varnar og sóknar um að fría liti. Suður gefur; NS á hættu. Norður D84 873 Á52 ÁDG10 Suður K652 ÁK KD9 9864 Vestur Norður Austur Suður 1 grand Pass 3 grönd Pass Pass Pass Vestur spilar út hjartadrotmingu. Taktu við stýrinu. Einföld slagatalning leiðir í ljós að níu slagir fást auðveldlega ef laufkóngurinn liggur fyrir svíningu. En hvað ef hann er í austur. Jú, sé svínað í laufinu strax, mun austur reka út síðustu hjarta- fyrirstöðuna og þá er spilið tapað ef liturinn er 5-3: Norður D84 873 Á52 ÁDG10 Vestur G93 DG962 1083 _____ 75 Suður K652 ÁK KD9 9864 Það vinnst nefnilega ekki tími til að sækja níunda slaginn á spaða. Besta spilamennskan er því augljóslega að byrja á spaðanum - reyna að "stela" þar slag áður en farið er í laufið. Ef spaðinn liggur 3-3 má vörnin ekki við því að láta spaðaásinn gleypa vinda. Þá fær sanghafi nefnilega þrjá slagi á litinn og þarf aðeins einn á lauf. Hins vegar má segja að það sé hittingur hvort spaða er spilað á drottningu blinds, eða á kónginn heima. Og þó. Það er líklegra eftir úLspilið að austur sé lengri í spaða, svo það er heldur betra að reikna með ásnum þar. Að svo mæltu ætti spilamennskan að liggja ljós fyrir: í öðrum slag er blindum spila inn á tígul og síðan kemur spaði upp á kóng. Þegar hann heldur, er óhætt að snúa sér að laufinu. Austur KDG9765 K8 952 9 Austur Á107 1054 G764 K32 Skinfaxi 5. tbl. 1986 15

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.