Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.10.1986, Page 26

Skinfaxi - 01.10.1986, Page 26
[íslensk \Getspá, Lottó 5/32 Starfsemi íslenskrar getspár fer af stað Texti: Guðmundur Gíslason Myndir: ísl. getspá Þá er lottóið loksins komið af stað eftir mikinn undirbúning og miklar umræður á síðast liðnum árum. Þessi talnagetraun er mjög vinsællí öðrum löndum og hefur gefið þeim er reka hana miklar fjárhæðir í aðra hönd. Hér á eftir verður sagt stuttlega frá þessari starfsemi þannig að menn verði einhverju nær um út á hvað þetta allt gengur. Hvað er lottó? Lottó er talnagetraun, talnaleikur eða happdrætti, sem hefur farið sigurför um heiminn á síðari árum. Leikurinn er í stuttu máli fólginn í því að þátttakendur velja ákveðinn fjölda talna út úr talnaröð og leggja smá- upphæð undir. Síðan eru jafnmargar tölur dregnar út og sá vinnur, sem hefur giskað á réttu tölurnar. í fljótu bragði virðast möguleikarnir ekki ýkja margir þegar menn eiga að velja 5 tölur úr 32 þ.e. frá 1-32 eins og gert verður hérlendis. Þó eru líkurnar til að vera með 5 rétta 1 á móti rúmlega 200.ooo. Lottó er í raun margra alda gamall leikur, en það er fyrst nú á síðustu áratugum sem það hefur orðið vinsælt sem fjöldahappdrætti um víða veröld. Möguleikar þess hafa stóraukist með tölvuvæðingunni og spennan eykst gífurlega þegar nær dregur drætti um háa vinninga og unnt er að halda áfram að giska á tölur nær fram á síðustu mínútu. Hvemig á að leika Lottó? Það er ákaflega auðvelt að leika Lottó og á því meðal annars byggjast hinir miklu vinsældir leiksins um víða veröld. Hér heitir leikurinn Lottó 5/32 og heitið segir til um það að við eigum að velja 5 tölur úr talnaröðinni 1-32 á lottómiðunum. Miðamir fást á sölu- stöðum Lottó 5/32 og eru ókeypis. Á hverjum miða eru 5 raðir, merktar röð A, B, C, D og E. Þátttakendur geta valið eina röð eða fleiri og strika lóðrétt yfir einhverjar 5 tölur í hverri röð. Síðan framvísa þeir miðanum á sölustað og borga 25 kr. fyrir hverja röð, þannig að þeir geta greitt 25-125 kr. fyrir hvern miða, eftir því hve margar raðir þeir nota. Að sjálfsögðu geta þeir útfyllt eins marga miða og þeir óska, en gjaldið er sem sagt 25 kr. fyrir hveija röð. Umboðsmaðurinn stingur svo Lottómiðunum í sölukassa íslenskrar getspár og hann skrifar móttökukvittun, sem þátttakandinn fær í hendur og hún gildir sem sönnunargagn ef vinningur fellur honum í skaut. Mikilvægt er að þátt- takendur beri saman kvittun og Lottó- miða og sjálfsagt er að skrifa nafn sitt á kvittunina ef hún skyldi týnast eða ruglast saman við aðrar kvittanir, og er gert ráð fyrir því aftan á kvittuninni. Sölu á Lottómiðum lýkur 15 mín. áður en dregið verður í sjónvarpinu og erþað gert með því að slökkt er á öllu sam- bandi við sölustaði í stjómstöðinni sem er í kjallara íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal. Hverjir eiga Lottó 5/32? Það eru þren fjölmenn samtök sem eiga og reka félagið íslenska getspá, sem starfrækir Lottó 5/32. Þessi samtök eru: íþróttasamband íslands sem á 46,67%, Ungmennafélag íslands sem á 13,33% og Öryrkjabandalag íslands sem á 40%. Hreinn ágóði af Lottó 5/32 skiptist milli eigenda í sömu hlut- föllum. Sérstök lög voru sett á Alþingi 2. maí 1986, sem heimiluðu dómsmálaráðherra að veita þessum samtökum leyfi til þess að starfrækja talnagetraunir í nafni félags, sem þau skyldu stofna. Félagið var svo stofnað 8. júlí 1986 og hlaut nafnið íslensk getspá. Það er undan- þegið skattskyldu og vinningar Lottó- þátttakenda eru skattfrjálsir þ.e. tekju- skattfrjálsir, en við það er átt þegar talað er um skattfrelsi happdrættis- vinninga. Hveraig er dregið? Dráttur í Lottó 5/32 fer fram í beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu á hverjum laugardegi og hefst útsendingin stundarfjórðungi fyrir aðalfréttirkvölds- ins. Þetta er algert nýmæli hérlendis, en þessi sami háttur er hafður á víða erlendis og alls staðar þar sem það er gert flykkjast áhorfendur að tækjum sínum. Þar sem miklar fjárhæðir geta verið í húfi eru miklar öryggisráðstafanir 26 Skinfaxi 5. tbl. 1986

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.