Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.10.1986, Page 31

Skinfaxi - 01.10.1986, Page 31
dökkgrár, er bök fuglanna vita að áhorfenda eða Ijós, er fuglarnir allt í einu eins og að gefnu merki velta sér. Með fjörufuglum haust og vor má sjá árvissan farandfugl skjótast í ætisöflun í fjörumori útsogsins. Þetta er Sanderla. Grænlenskur varpfugl. Að vorlagi er hún föl rauðbrún, en á höfði, hálsi og bringu prýdd dökkum rákum og dílum. Kviður hvítur. Að haustlagi hvítust og smæst allra fjörufugla. Vænghnúar dökkir. Á öllum árstímum eru goggur og fætur svartir, og á vængjum áberandi hvít löng vængbelti. Fleiri farandvaðfugla njótum við, er þeir leggja hér um flugleiðir sínar, vor og haust, frá vetursetu til varpstöðva á Grænlandi og íshafseyjum Kanada. Rauðbrystingur er ein þessara tegunda. Tegundin er áberandi að vorinu vegna sumarbúnings, sem er rauðbrúnn á lit á höfði, hálsi og niður um bringu og kvið. Að hausti er þessi purpuraskrúði horfinn, og hið efra er hamurinn grár, en hið neðra hvítur. Á haustferð til suðurs er fuglinn því minna áberandi, en einnig mun fjöldinn minni, því að þá fljúga margir framhjá. Fuglinn er í sjón þybbnari en lóa. Goggur dökkur, stuttur, fætur einnig stuttir, fölleitir. Önnur þessara hánorrænu fugla er tildran, sem þó, að hún eigi sér varpstöðvar á ströndum Skandinavíu og Finlands, hefur hún eigi numið Island til varps, en fer hér um vor og haust, hefur að þó nokkru ráði árvissa vetrarsetu og strjálningur sést á fjörum að suntarlagi. Fætur eru gulrauðir, stuttir. Goggur er einnig stuttur, gildur við rætur, en mjókkar fram, svartur. Bak og ofanverðir vængir á sumrum með rauðbrúnum og svörtum llötum, en á flugi kvíslast um þessan hluta hamsins löng hvít bak- og vængbelti. Kverk og ofanverð bringa svört og kvíslast þessi litur um háls og vanga til augna, höfuð að öðru leyti hvítt með flíkróttan gulbrúnan koll. Að neðan er fuglinn hvítur. Stél svart. Á vetri er tildran fölgrá hið efra og kverk hvít. Þessi litsmunur að ofan og neðan einkennir fljúgandi tildruhópa frá sendlinga-flokkum á flugi. Röddin er hvellur klingjandi hljómur. Vepjan hefur löngum sést að vetrarlagi og þá stundum í stórum hópum, og nefndist ísakráka. Frá 1959 hefur orið vart við varp (Homafjörður). Síðan hafa vörp vepju orðið tíðari, t.d. Kelduhverfi (1963), Eyjafirði (1979- '82), Fljótsdalshéraði (um 1980) og Meðallandi (1983). Langur uppsveigður toppur aftur frá kolli einkennir fuglinn á fæti, en á flugi breiðir snubbóttir vængir. Að ofan er fuglinn svartur og slær á litinn grænleitan blæ. Á stéli ofanverðu er svartur þverbekkur, en milli hans er hvítt belti upp að ryðbrúnum stélrótum. Þessi roðablær breiðist bringu og út á neðanverða vængi breiðist hvítur litur. Ofanverð bringa svartleitt belti um ljósa kverk. Höfuð krímótt. Goggur stuttur, dökkur. Fætur ryðbrúnir. Röddinn skerandi hávær, margbreytileg, er fuglinn leikur ástleitnisflug á mökunartíma. Áður í þessum þáttum hefur verið minnst á gráhegra sem er hér árviss vetrargestur og var snemma á þessu hausti mættur að Elliðavatni, þar sem hann einn daginn fékk ekki notið silungs, sem hann hafði veitt fyrir ásókn fálka. Verpandi er fuglinn næst okkur í Noregi og á Bretlandi. Bolur fuglsins og vængjabök blýgrá, vangar og háls hvítari. Um kverk, niður á kvið gengur mjór dökkur fleygur. Frá goggrótum liggur hvítt vik aftur á koll, en neðan þess og aftur frá augum svartar rákir sem teygja sig eftir löngum hnakkaskúf. Goggur gulur, hvass, en þykknar til rótanna. Fætur fölbrúnir. Hljóð frá hegra heyrast lítt hér. Á flugi er hinn langi háls beygður að bringu og fætur skaga langt aftur undan stéli. Skinfaxi 5. tbl. 1986 31

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.