Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1987, Síða 5

Skinfaxi - 01.04.1987, Síða 5
"Aðgát skal höfð í nærveru fjár" Nú þessa dagana er mikið fé smátt og smátt að berast út til ungmennafélaganna í landinu úr þeirri átt sem menn áttu ekki von á; úr happdrætti. Af þeim 13,33 prósentum sem Ungmennafélag Islands fær úr Lottó hagnaðinum, (46,7% til ÍSÍ og 40 % til Öryrkja- bandalags íslands) fara 90 prósent út til sambanda og félaga. Gert er ráð fyrír því í síðustu áætlunum að hlutur Ungmenna- félags íslands á árinu verði um 26 milljónir króna. Þetta er auðvitað aðeins spá byggð á sölu lottómiða fyrstu vikur ársins en gefur hins vegar nokkra hugmynd um hvað um er að ræða. Þetta eru umtalsverðar tjárhæðir sem koma mjög óvænt, menn gerðu alls ekki ráð fyrir að Lottóið myndi slá jafn rækilega í gegn og það hefur gert. Hvaða áhrif hefur þessi nýja staða á hag og almennt starf ungmennasambanda og félaga. Er þetta vítamínsprauta og lyfti- stöng á starfsemina eða eru þessar fjárhæðir dragbítur á virkni félaganna? "Menn verða að varast að líta á Lottóið sem einhverja gullnámu og segja: " Nú er fjárhagnum borgið, nú getum við bara slappað af'. Við verðum að halda vöku okkar, Lottóið er ekki ótæmandi þó það létti eitthvað undir. Það fer á margar hendur og hefð bundnar fj áröflu n- arleiðir verða áfram nauðsynlegur og snar þáttur í starfinu." Þessi tilbúna tilvitnun lýsir allvel þeim varnaðarorðum sem margir félagar ungmennafélaganna hafa borið fram á héraðsþingunum sem staðið hafa yfir víða um land að undanförnu. Lítil þörf fyrir styrki? Mörg einstök ungmennafélög hafa í gegnum tíðina sótt um styrki til sinna sveitarfélaga og oft og iðulega fengið góðar viðtökur. Á einu nýlegu héraðsþingi heyrðust hins vegar raddir þess efnis að nú mætti búast við að sveitarfélög myndu við hinar nýju aðstæður Iíta styrkveitingu til ung- mennafélaga öðrum augum. Með tilkomu Lottós væru ungmennafélögin það vel stödd að mun minni þörf væri fyrir styrkveitingu þeim til handa. "Lottóið nægir þeim." Líkast til, og vonandi, er nú óþarfi að taka undir slíka spádóma. Það er hins vegar ljóst að meðan ungmennafélög sýna fram á að þau standa í stórvirkjum, eins og þau hafa mörg hver gert, verður litið jákvæðum augum á starfið. Ef hins vegar dofnar eittlivað yfir starfsemi þeirra, en þau halda áfram að fá fjármagn úr Lottósjóðnum, má alveg búast við viðhorfi því sem fyrr er nefnt. En hvernig snýr þetta við félögunum og samböndum þeirra út um land? Menn líta það auðvitað misjöfnum augum hvernig beri að útdeila þessu fjármagni. Ein megin spurningin er hvort leggja eigi þetta fjármagn til að byrja með í samböndin og byggja þau enn frekar upp. Fylgismenn þessarar hugmyndar segja að uppbygging sambandsins sé félögunum lífsnauðsynleg. Aðrir segja að þetta sé í raun þveröfugt. Það beri að styrkja félögin, sambandið verði því öflugri sem félögin eru sterkari. En víða eru spurningar sem þessar ónauðsynlegar, þá af ýmsum ástæðum. Hjá UÍA veitir ekki af þessu fjármagni inn í sambandið þar sem það stendur höllum fæti eftir að sumarhátíðin í Atlavík er fyrir bí. Adolf Guðmundsson, formaður UÍA, sagði í samtali við Skinfaxa að það hefði ekki verið nein spurning um það hjá aðildarfélögum UÍA hvert þetta fjármagn skyldi fara. Hann sagði að ákveðið hefði verið á formannafundi að féð rynni til UÍA fyrsta árið. "Þetta verður síðan endurskoðað á ársþingi héraðssambandsins nú í maí", sagði hann. Adolf gagnrýndi hins vegar hversu seint þessar greiðslur bærust. "Þetta fé kemur í smáslöttum og kemur seint", sagði hann. "Við slíkar að- stæður vakna hjá manni spurningar um það hvort verið sé að búa til eitthvert bákn fyrir sunnan, t.d. hjá íslenskri Getspá. En varðandi þá skiptingu sem ÍSÍ og UMFÍ hafa ákveðið, finnst mér að t.d. hjá ÍSÍ hafi sala á sambands- svæði allt of mikil áhrif. Þetta kemur auðvitað vel út hjá þéttbýlisfélögunum, sérstaklega Reykjavíkurfélögunum", sagði Adolf Hjá Borgfirðingum var það einnig álit flestra að leggja Lottó- peninga, a.m.k. fyrsta árið, í að fjármagna aðstöðu fyrir sambandið. Ákvörðun um nákvæmar reglur varð- andi skiptingu Lottófjárins, var því frestað í 2 til 3 ár. Blómlegt starf alltaf grunavöllurinn Þórir Jónsson, formaður Ungmennafélags Reykdæla og gjaldkeri Fæðingarhríðir Lottóskiptingar. Frá ársþingi HSÞ í mars síðastliðnum. 5

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.