Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1987, Síða 11

Skinfaxi - 01.04.1987, Síða 11
UNÞ (Ungmennasamband N- Þingeyinga) hélt sitt ársþing í Lundi, 18. apríl síðastliðinn. Mæting var sæmileg en þingið var stafrssamt. Helstu inál þingsins voru Lottó og Landsmót. Þingið lýsti yfir stuðningi við hugmyndir UMFÍ varðandi skipt- ingu til sambandsaðila. Þingfulltrúar voru hins vegar ekki jafn hrifnir af skiptingu ÍSÍ, sérstaklega hvað varðar þá ákvörðun að skipta stórurn hluta tekna eftir sölu á sambandssvæði. Slíkt Ieiðir auðvitað til þess að tekjurnar fara á þá staði þar sem sölukassarnir eru. Dreifbýlissvæðin verða út undan. Annars var mikil bjartsýni ríkjandi á árið framundan, Landsmótsár. UNÞ á 50 ára afmæli í haust, 21. nóvember og eru menn farnir að huga að því hvernig megi halda upp á það. Ný stjórn var kjörin. Hana skipa Aðalbjörn Gunnlaugsson, formaður, Haukur Marinósson, Edda Hrafnhildur Björnsdóttir, Þorbjörg Bragadóttir og Stefán Eggertsson. Þá hefur Gunnlaugur Aðalbjarnarson verið ráðinn framkvæmdastjóri sambandsins. UDN (Ungmennasamband Dalamanna og N-Breiðfirðinga) hélt ársþing sitt að Staðarfelli, 14. mars. Eins og víða annars staðar var Lottóið áberandi í umræðunni á þinginu. Því máli var skotið til stjórnar sambandsins að og hefur hún ákveðið að sambandið skuli fá það fjármagn sem kemur úr Lottóinu. Akveðið var að bíða með frekari skiptingu þar til frekar verður ljóst hverni Lottóið þróast hér á landi. Á þinginu var ákveðið að ganga til viðræðna við USVH um þátttöku í Ungmennabúðum á Reykjum í Hrútafirði. Nýr formaður hefur verið kjörinn Kristinn Jónsson í Búðardal. Þing USAH (Ungmenna- samband A-Húnavatnssýslu) var haldið á Blönduósi, 29. mars síðastliðinn. Þetta var afskaplega líflegt og afkastamikið þing, samkvæmt venju var allt að 100 % mæting (hjá þeim þarf víst tæpast nein 5 % eftir mætingu á þing í Lottóúthlutun til félaga!) Auðvitað var Lottó mikið rætt, skipting til félaga var ákveðin. Húnavakan sem nú er nýlokið var einnig mikið rætt svo og blaðið þeirra, Húni. Ungmennabúðimar vinsælu að Reykjum í Hrútafirði sem sambandið á þátt í, var einnig til umræðu. Þá var það eitt einkenni á þessu þingi Austur- Húnveminga að tekið var mjög rösklega á þeim málum sem þurftu úrbóta við. Sambandið hefur nýlega gengið frá ráðningu framkvæmdastjóra fyrir annaríkt sumar. Það er Þorsteinn Sigurðsson, hann hefur unnið mikið og gott starf innan sambandsins, aðallega í frjálsíþróttum. Telja USAH menn sig heppna með góðan starfskraft. En hér látum við lokið þessari allt of lauslegu yfirreið um ársþing héraðssambanda og sjáum hvað setur, það er viðburðaríkt sumar framundan. IH "Nota þessa reynslu í lokaritgerðina" Rætt við Hafstein Óskarsson - nýjan framkvæmdastjóra FRÍ "Ég er nú búinn að vera hér í þessu starfi síðan um mánaðamótin mars/apríl og líkar bara vel", segir Hafsteinn Óskarsson, nýr framkvæmdastjóri Frjálsíþróttasambands íslands (FRI). Hafsteinn er 27 ára gamall landfræðingur en hefur undanfarið verið við nám í viðskiptafræði og er að ljúka prófi frá háskóla í Gautaborg í Svíþjóð. "Ég á eftir lokaritgerð", segir Hafsteinn, "og hef hugsað mér að nýta reynslu mína úr þessu starfi í hana. Þannig er, að ég hef hugsað mér að skrifa ritgerð um tengsl íþrótta og viðskiptalífs, nokkuð sem er orðið umfangsmikið í dag hér á landi eins og annars staðar í heiminum og ég er mikið að starfa í slíkum málum þessa dagana. Þar er til dæmis um að ræða endurnýjun á auglýsingasamningum fyrirtækja á Valbjarnarvelli, auglýsingaskiltunum." -Hafsteinn er beðinn að kynna sinn íþróttaferil en margir kannast sjálfsagt við hann úr hlaupunum. "Ég var í hlaupunum já, fyrst og fremst í millivegalengdunum en einnig í langhlaupunum. Ég er ÍR- ingur, var að hlaupa á árunum '73 til '78. Þá meiddist ég og fór síðan ekki að hlaupa aftur fyrr en '83 til '84. Þá var ég aðallega í 3000 metra hindrunarhlaupi, svo hef ég tekið þátt í öðrum langhlaupum." -En hvað er helst á dagskrá hjá þér og FRÍ þessa dagana? "Það eru nú mót sumarsins sem Hafsteinn Óskarsson, framkv.stj. FRÍ. FRÍ á þátt í. Við gengumst nýlega fyrir Skólamóti FRÍ, "Landsbankahlaup- ið" svonefnda sem FRÍ og Landsbanki íslands standa fyrir víða um iandið. Það verður 16. maí. Svo er það auðvitað Evrópubikarkeppnin í Portúgal í sumar. Þá má ekki gleyma Bikarkeppni FRÍ og Afmælismóti FRÍ en sambandið verður 40 ára á þessu ári. Á þessu Afmælismóti verður úrvalskið frá V-Noregi, landslið Luxemborg og síðan landslið íslands. Flugleiðamótið verður síðan 20. júní , þar keppa bestu frjálsíþróttamenn íslendinga. Svo er það auðvitað fjáröflun fyrir sambandið sem er stór þáttur í starfinu eins og ég sagði áðan. Svo og að leita úrlausna mála fyrir hinar ýmsu nefndir sambandsins." -Kom þér eitthvað á óvart í þessu starfi? "Nei, ekki get ég nú sagt það. Ástæðan fyrir því er sú að ég hef verið svo mikið í svona störfum sem tengjast frjálsíþróttunum, innan sambandsins og hjá Í.R. Þannig að ég er bjartsýnn á framtíðina." IH 11

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.