Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1987, Blaðsíða 19

Skinfaxi - 01.04.1987, Blaðsíða 19
arattan Eðvarð Þór Eðvarðs- son sundmaður úr ( Ungmennafélagi Njarðvíkur er otvírætt fþróttamaður Islands númer eitt. Hann er handhafi titilsins "íþróttamaður ársins 1986", kjörinn af íþrótta- fréttamönnum. En það er alveg ljóst að Eddi, eins og hann er oftast kallaður, þarf engar slíkar tilnefningar til að staðfesta stöðu sína hér á landi. Árangur hans sýnir að hann er í séiflokki. Og ekki aðeins hér á landi, heldur einnig erlendis. Hann er í hópi" 8 bestu baksunds- manna heims í dag. Og er alltaf að bæta sig. Það er sagt um Edda að hann stingi sér varla í laugina, að hann setji ekki einhver met. Á síðasta mótinu sem hann tók þátt í hérlendis, íslands- meistaramótinu innanhúss í lok síðasta mánaðar, tvíbætti hann íslandsmet sitt í 100 m. bringusundi karla og setti nýtt met í 200 m. baksundi karla. Hann hélt svo upp- teknum hætti á alþjóðlega sundmótinu í Skotlandi (eins og reyndar fleira sundfólk íslenskt) nú um daginn. En þessi mót eru fyrst og fremst upphitun fyrir baráttuna við bestu sundmenn heims. Hann býr sig nú undir átökin við þa á Evrópumeista- rmótinu í Strassbourg í ágúst í sumar. En hvermg hófst ferill þessa afreksmanns okkar? "Ég vil segja að ég hafi byrjað að stunda sundið að einhveiju marki þegar ég var um það bil 10 ára gamall. Þá var ég farinn að sjá metin út undan mér og finna hvers ég var megnugur. Ég hafði verið í körfubolta samhliða sundinu í nokkur ár, hjá Ungmenna- félagi Njarðvíkur. Ég var íslands- meistari í 5. 4. og 3. flokki. Þegar ég var kominn í 3. flokk í körfunni hætti ég að æfa hana. Þetta gat ekki lengur farið saman, sundið og karfan. Reyndar spila ég enn með 2. flokki í Njarðvíkurliðinu. Við rétt misstum af íslandsmeistartitlinum í þeim flokki núna nýlega, urðum í 2. sæti. Ég æfi ekkert með strákunum en þetta eru góðir félagar og ég telst enn liðtækur þó ég hafi auðvitað misst mikið úr." Ekki erfitt val -En á þessum tíma, þegar tími var kominn til að velja á milli greina, var valið erfitt? 19

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.