Skinfaxi - 01.04.1987, Side 33
Skákþáttur
Jón L. Ánmson
Tal átti fallegustu
skákina
Það er erfitt að vera áhorfandi er
slíkt einvala lið ofurstórmeistara er
saman komið eins og á IBM-
skákmótinu í Reykjavík í febrúar.
Sýningarborðin eru sex að tölu og
einungis mjög æfðir skákmenn geta
fylgst með öllum skákunum samtímis.
Aðrir reyna að geta upp á því hvaða
skák er líklegust til sviptinga og
einbeita sér að henni. Sumir halda
mest upp á Tal og einblína á sýningar-
borðið þar sem hann á í hlut. Aðrir
dýrka Kortsnoj og láta engan leik hans
fram hjá sér fara. Svo er hollenski stór-
meistarinn Timman eftirlæti margra
skákmanna. Polugajevsky og Portisch
standa einnig ávallt fyrir sínu og litríki
Júgóslavinn Ljobomir Ljubojevic á sér
dyggan stuðningshóp hér á landi.
En hvað eiga áhorfendur svo að gera
þegar einn yngsti keppandi mótsins,
englendingurinn Nigel Short, slær í
gegn og teflir léttleikandi og glæsilegar
skákir? Eða eiga þeir kannski að
fylgjast með skákum íslensku kepp-
endanna? Víst er að áhorfandanum ætti
ekki að leiðast, jafnvel þótt liann kunni
minna en ekki neitt fyrir sér á
skáksviðinu.
Áður en mótið hófst býst ég við að
skákunnendur hafi almennt hlakkað
mest til að fá að fylgjast með elstu
keppendunum að tafli, Tal og
Kortsnnoj. "Töframaðurinn frá Riga",
sem Tal er gjarnan nefndur , hefur
fundið sér stað í hjörtum manna, allt frá
því hann tefldi fyrst hér á landi, sem var
á heimsmeistaramóti stúdenta 1957.
Svo kom hann aftur til þess að vinna
glæsilegan sigur á Reykjavíkurskák-
mótinu 1964 og nú hefur hann komið
tvö ár í röð. Hann hefur reyndar róast
mjög í taflmennsku sinni síðan á yngri
árum en snilldameisdnn er aldrei langt
undan. Elstu menn fylgjast spenntir
með
skákum hans og bíða eftir næstu fléttu.
Jógúrtstríð og
dularsálfræðingar
Tal er fyrrum heimsmeistari en
Kortsnoj verður að láta sér nægja
nafnbótina "fyrrverandi áskorandi".
Ólíkt Tal hefur hann ekki teflt fyrr á
kappmóti hér á landi, þótt hann hafi átt
hér stutta viðkomu oftar en einu sinni.
Hann er kannski þekktastur fyrir að vera
flóttamaður og deilur sínar við Tigran
heitinn Petrosjan og síðar Karpov í
heimsmeistaraeinvígunum
jógúrtstríð, dularsálfræðinga innhverfa
íhugun og fleira, sem kryddaði þessi
einvígi. Á stundum hefur taflmennskan
sjálf horfið í skuggan en nú loks fengu
íslenskir skákunnendur notið snilli
hans. Margir vildu kjósa Kortsnoj
"mann mótsins", fyrir óbilandi baráttu-
gleði og djarfa og skemmtilega
taflmennsku. Hann gerði aðeins eitt
jafntefli, við Ljubojevic, eftir að hafa
óvart víxlað leikjum í byrjuninni og
fengið vonda stöðu, sem hann rétt náði
að bjarga.
Mótið var vart hafið er þeir félagar
Tal og Kortsnoj eignuðust keppinaut
um hylli áhorfenda. Nigel Short þótd
tefla svo skemmdlega í fyrstu umferð
að menn þóttu strax greina lfklegan
sigurvegara. Á meðan á fyrstu umferð
stóð tóku ritstjórar daglegs mótsblaðs
átta áhorfendur tali og báðu þá um að
spá fyrir um úrslit mótsins. Svo
vinsæll var Short orðinn að allir sem á
annað borð tóku afstöðu, spáðu honum
sigri. Og þetta gekk eftir. Short vann
sex fyrstu skákirnar og varð eftir þótt
framganga hans yrði ekki eins vaskleg í
seinni hluta.
Jákvæðar jónir
Þessir þrír Short, Tal og Kortsnoj,
skyldu allir eftir jákvæðar jónir í
hugum áliorfenda. Short tefldi best og
fékk flesta vinninga; Kortsnoj tefldi af
mestri djörfung og barðist af mestri
grimmd og Tal tefldi fallegustu skák
mótsins, gegn Jóhanni Hjartarsyni í 2.
umferð, þar sem hann töfraði fram
snilldarlegar fléttur.
Hvítt: Mikhail Tal
Svart: Jóhann Hjartarson
Spænskur leikur.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7.
Bb3 0-0 8. c3 d6 9. h3 Ra5 10.
Bc2 c5 11. d4 Dc7 12. Rbd2
Bd7 13. Rfl cxd4 14. cxd4 Hac8
15. Re3 Rc6 16. d5 Rb4 17.
Bbl a5 18. a3 Ra6 19. b4 !
Þetta vafðist ekki fyrir stórmeistur-
unum, enda hafa allir þessir leikir sést
áður og oftar en einu sinni. Síðastí
leikur Tals er nýjasta framlag hvíts til
fræðanna. Svartur má vitaskuld ekki
þiggja þetta peð með 19. - axb4 20.
axb4 Rxb4 vegna 21. Bd2 og
riddarinn fellur. Jóhann þótdst þó við
öllu búinn. Hvítur hefur átt betur í
síðustu skákum í þessu afbrigði en
Jóhann taldi sig hafa náð að endurbæta
taflmennsku svarts.
19. - g6 20. Bd2 axb4 21. axb4
Db7 22. Bd3
Áður hefur verið leikið 22. Rh2, sem
Jóhann hafði í hyggju að svara með
22. -Rc7 ! og síðan Rc7 - a8-b6 með
prýðilegum færum. Það er tíl marks
um snilld Tals að hann hindrar þessa
áætlun, þó svo henni hafi aldrei verið
beitt í tefldu tafli.
22. -Rc7 23. Rc2 ! Rh5
Nú svarar hvítur 23. - Ra8 með 24.
Ra3 og þrýstingurinn að b-peðinu
hamlar því að svarti riddarinn komist
áfram.
24. Be3 Ha8 25. Dd2 Hxal
ónákvæmi sem gerir hvítum fært að
bæta stöðuna frekar. Annars geta fram-
tíðarmöguleikar svarts varla talist
sérlega bjartir þrátt fyrir aðra leiki.
33