Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1987, Page 37

Skinfaxi - 01.04.1987, Page 37
Bændaglíma Suðurlands Skemmtileg og spennandi Bændaglíma Suðurlands hin fyrsla í röðinni var haldin að Laugalandi í Holtum hinn 28. febrúar síðastliðinn að viðstöddu fjölmenni. Glíman var haldin í minningu Sigurðar Greipssonar glímu- kappa, formanns og heiðursformanns Skarphéðins og skólastjóra íþróttaskól- ans í Haukadal. Aðalhvatamaður þess að halda þessa keppni var Hafsteinn Þorvaldsson fyrrv. formaður UMFÍ. Naut han góðs stuðnings forystumanna UMFÍ, ÍSÍ, GLÍ og HSK við að skipuleggja glímuna. Bændaglíman er elsta keppnis- form glímunnar og jafnframt mjög spennandi oft á tíðum, en þetta glímu- form er fremur sjaldséð núorðið. Fljótlega var ákveðið að halda glímuna í tengslum við héraðsþing HSK og þá » á kvöldvökunni sem jafnan er að kvöldi fyrri dags. Nú varð að velja keppnis- sveitir og lá þá beint við að Skarp- héðinsmenn sjálfir legðu þær til, því HSK er eitt af fáum samböndum á landinu sem hcfur sinnt gh'munni að ráði,. Amesingar - Rangæingar Árncsingar eiga unga og upprcnnandi glímumenn og var þeim raðað upp í svcit og síðan leitað til Rangæinga um að koma með sveit á móti. Þar voru menn sem að mestu voru hættir glímuiðkun en þeir brugðust drcngilega við, hófu æfingar og von bráðar voru tvær sjö manna sveitir sýslanna tilbúnar í slaginn. Glíman hófst sem fyrr segir á kvöldvöku HSK. Gestir voru á þriðja hundrað og var ljóst að menn biðu glímunnar með mikilli eftirvæntingu. Umgerð og framkvæmd glímunnar var einkar glæsileg en hún var fyrsta l keppnin sein fór fram í nýju og glæsilegu íþróttahúsi Rangæinga. Glímumenn gengu fylktu liði í salinn og síðan hélt Þorsteinn Einarsson tölu og sagði frá glímukappanum Sigurði Greipssyni. Síðan hófst glíman. Bændaglíma fer þannig fram að hvor sveit hcfur fyrirliða sem nefnast bændur. Þeir senda fram sína liðsmenn hvom gegn öðrum og þeir glíma. Sá er sigrar heldur áfram en hinn er úr leik. Síðast glímir bóndinn, þegar allir hans menn eru fallnir, og sigrar sú sveitin sem fellir alla andstæðingana. Liðin voru þannig skipuð: Lið Rangæinga: Már Sigurðsson, heimabóndi Elías Pálsson Ólafur Pálsson Kristinn Guðnason Kristinn Jónsson Engilbert Olgeirsson Hjörleifur Pálsson Lið Ámesinga: Kjartan Lárussson, heimabóndi Jóhannes Sveinbjörnsson Kjartan Helgason Gunnar Gunnarsson Kjartan Ásmundsson Hörður Óli Guðmundsson Jóhann G. Griðgeirsson Voru þar miklir kappar samankomnir og ekki færri en fimm sem unnið höfðu Skarphéðinsskjöldinn og sá sjötti sem var glímukappi Suðurlands. Hófst nú glíman og glímdu fyrstir Jóhann G. Friðgeirsson og Ólafur Pálsson. Höfðu þeir skamma stund glímt er Ólafur lagði Jóhann glæsilega á hælkrók á lofti aftur fyrir báða fælur. Sjaldgæft bragð og óverjandi. Næstir glímdu Hörður Óli Guðmundsson og Kristinn Guðnason. Kristinn lagði Hörð á klofbragði og voru þá tveir Árnesingar fallnir í valinn. Næsta glíma var á milli Gunnars Gunnarssonar og Kristins Jónssonar. Þar var snarplega tekið á en að lokum hafði Kristinn sigur. í fjórðu glímu áttust við Kjarlan Ásmundsson og Elías Pálsson. Eftir nokkra viðureign lá Kjartan og voru þá fjórir Ámesingar fallnir en Rangæingar allir uppistandandi. Áhorfendur voru vel með á nótunum og hvöttu kappana óspart. Nú fór fram fyrir Ámesinga Kjartan Helgason. Hann var þeirra elstur og reyndastur og hefur þjálfað þá yngri með góðum árangri. Á móti honum gékk Engilbert Olgcirsson og hafði Kjartan sigur eftir hvatlega glfmu. Næstir gengu fram stærsti og minnsti maður glímunnar, nefnilega Jóhannes Sveinbjörnsson og Hjörlcifur Pálsson. Þrátt fyrir stærðarmuninn gekk Jóhannesi erfiðlega að eiga við Hjörleif sem varðist fimlega og sýndi mjög góða varnartækni. Að lokum tókst Jóhannesi að leggja hann á sniðglímu á lofti sem var mjög vel útfærð. Þar næst glímdu Kjartan Helgason og Ólafur Pálsson. Báðir glímdu vel en að lokum vann Kjartan á klofbragði. Því næst glímdu Jóhannes Sveinbjörnsson og Elías Pálsson. Eftir skamma viðureign hóf Jóhannes Elías upp í himinhált vinstri fótar klofbragð og kom Elías engum vörnum við. Var þetta eitt af glæsilegustu brögðum glímunnar og fögnuðu áhorfendur óspart. Nú var staðan orðin sú eftir vasklega framgöngu Kjartans og Jóhannesar að jafnt var orðið í liðunum og eftir stóðu þrír af hvorum. Nú skyldu glíma Kristinn Jónsson og Kjartan Helgason. Þar var hart barist en að lokum sigraði Kristinn og lagði Kjartan á snarpri sniðglímu. Glæsileg tilþrif Næstir glímdu Jóhannes Sveinbjörnsson og Krislinn Guðnason. Eftir fjöruga viðureign náði Jóhannes sínu skæðasta bragði, klofbragðinu, á Kristni og þótti öllum það glæsileg tilþrif þegar Kristinn sveif úr háalofti í gólfið eftir það bragð. Kom það sér vcl að Kristinn er vel að manni svo að hann kom næstum jafngóður úr fallinu. Nú tefldi Már heimabóndi fram sínum síðasta liðsmanni gegn Jóhannesi, Kristni Jónssyni. Kristinn hafði komið nokkuð á óvart, lagt tvo Ámesinga þrátt fyrir litla æfingu. Eftir skamma stund fór allt á sömu leið. Jóhanncs 37

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.