Skinfaxi - 01.05.1990, Page 6
Leiðari - Frá ritstjóra
Landsmót, almenningsíþróttir, bygging íþróttamannvirkja
Efni þessa blaðs er að mörgu leyti helgað 20. Landsmóti
UMFÍ sem haldið verður 12. -15. júlí í Mosfellsbæ. Rætt
er við forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur, verndara
Landsmótsins, spádómar nokkurra íþróttagreina eru birtir
og rætt við Jón M. Guðniundsson sem var keppandi á
Landsmótinu í Haukadal fyrir 50 árum. Lesendur geta af
þeim lestri gert sér í hugarlund hver þróun Landsmótanna
hefur verið. í Haukadal kom keppnisfólkið með litla
æfingu að baki og æfingar fóru stundum fram við
frumstæðar aðstæður eins og sundæfingar UMSK að
Álafossi. Á þeint árunt var hugsunin sú að nota túnin,
vatnsstíflur og aðra ófullkomna aðstöðu til að byggja upp
hreysti og gott form líkamans, enda áttu menn ekki um
annað að velja.
Nú á dögum eralmenningurað verða sífellt meðvitaðri unt
mikilvægi íþróttanna og þann styrk sem þær veita okkur
andlega og líkamlega.
Fjöldaþátttaka í íþróttum er það sent koma skal.
Nauðsynlegt er að gera öllum, ungum sem öldnum, kleift
að stunda íþróttirvið sitt hæfi. í nútíma þjóðfélagi ermargt
sem glepur og þess vegna er mikilvægt að uppalendur
reyni að beina áhuga barna og unglinga inn þær brautir sem
geta orðið þeim góð kjölfesta alla tíð. í Skinfaxa er að
finna grein unt almenningsíþróttir og þá aðstöðu til
almenningsíþrótta á Laugarvatni sem öllum landsmönnum
er opin.
Einnig eru nýlegar breytingar á Iþróttalögum skoðaðar, þ. e.
þærgreinar lagana sent skipta máli varðandi uppbyggingu
íþróttamannvirkja. Vert er að athuga hvort þær breytingar
geti haft varhugaverðar afleiðingar fyrir uppbyggingu
íþróttamannvirkja í framtíðinni. Einn fullkominn
frjálsíþróttavöllur fullnægir ekki þeim þörfum sem fyrir
hendi eru. Stefna þarf að markvissri uppbyggingu
íþróttamannvirkja allsstaðar á landinu. Hvernig skal þeirri
uppbyggingu háttað? Verður það ef til vill gerl með
samstarfi sveitarfélagaog ungmennafélaga, s.br. grein Sveins
Jónssonar á Kálfskinni í Eyjafirði, grein Kristjáns E.
Yngvasonar, stjórnarmanns UMFI og viðtal við Reyni
Karlsson, íþróttafulltrúa ríkisins. um Iþróttalög.
í Skinfaxa má einnig finna aðrar fróðlegar greinar svo sem
umgervigrasvelli,grasvelli,Evrópuleikaalmenningsíþrótta
í Svíþjóð 1991 o. fl.
Með kveðju og von um gott gengi á Landsmóti sent og
annarsstaðar.
Una María Oskarsdóttir
Ljósmyndasamkeppni Skinfaxa
Bestu Ijósmyndir teknar á Landsmótinu í Mosfellsbæ
Ákveðið hefur verið að efna til samkeppni um bestu ljósmyndir sem teknar verða á Landsmótinu í
Mosfellsbæ 12. -15. júlí.
Fyrstu verðlaun: Chinon Handyzoom myndavél með þriggja geisla sjálfvirkri skerpustillingu og
sjálfvirkri aðdráttarlinsu frá Hans Petersen, umboðsaðila Kodak hér á landi.
Önnur verðlaun: Chinon Belami ljósmyndavél með sjálfvirkri skerpustillingu, nett og meðfærileg
vél.
Þriðju verðlaun: Chinon Belami ljósmyndavél með sjálfvirkri skerpustillingu, nett og meðfærileg
vél.
Dómnefndmun veljabestu ljósmyndimar, en skilafresturertil 25.júlí. Munið að merkjamyndimar
vel með nafni, heimilisfangi og símanúmeri.
Verið með og sendið bestu ljósmyndina til:
Skinfaxa, Öldugötu 14 ,101 Reykajavík.
6
Skinfaxi