Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1990, Blaðsíða 17

Skinfaxi - 01.05.1990, Blaðsíða 17
LANDSMÓTSSPÁ Tekst UMSK að verja titilinn? Magnús Teitsson spáir um úrslit í handknattleik kvenna. Magnús Teitsson, íþróttakennari og framkvæmdastjóri Stjörnunnar, spáir í úrslit í handknattleik kvenna. Magnús hefur verið leikmaður 1. deildar bæði í handknattleik og knattspyrnu. Það má búasl við jafnari og skemmtilegri keppni í handknattleik kvenna á þessu Landsmóti en oft áður. Það eru 7 liö skráð til keppni. þeim er skipt í tvo riðla og sigurvegarar í riðlunum leikasíðan til úrslita. Leikirnir í riðlunum fara fram á malbiki, en leikimir um 1. og 3. sæti fara fram í íþróttahúsi. Þessi breyting er til mikilla bóta og úrslitaleikirnir verða eflaust skemmtilegri á að horfa. I A-riðli eru UÍA.HSKrUMFKogUMFN. ÍB-riðli eru UMSK, HSÞ og UMFG. Ég tel að UMSK og HSK koini til með að leika til úrslita. UMSK sigraði með mikium yfirburðum á síðasta móti, en ég tel að mótstaðan verði meiri í ár. HSK er nteð ungt og mjög skemmtilegt lið sem á eftir að veita UMSK mikla og harða keppni. Ég tel þó að reynsla UMSK stúlknanna vegi þungt og þær sigri. Keppnin um þriðja sætið verðureflaust hörðogspennandimilli HSÞogUMFK, en þó gætu UÍA og UMFN blandað sér í þessa baráttu. Spáð í sundið Auðunn Eiríksson íþróttakennari við íþróttakennaraskólann á Laugarvatni spáir í sundúrslit á Landsmóti. Fyrir sex árum var ég fenginn til að spá í úrslitin í sundinu á Landsmótinu í Njarðvík. Sú spá var nú heldur betur marklaus. Ég hafði spáð sundmönnum í verðlaunasæti í greinum sem þeir kepptu svo ekki í þegar allt kom til alls. Var helsta ástæðan sú að skráningar á mótið höfðu ekki borist mótanefnd landsmótsins þegar spáin var gerð. Fyrir vikið var nær ómögulegt að vita hvaða keppendur rnyndu keppa í hvaða grein. I stigakeppni, sem landsmótið er, er ekki sjálfgefið að sundmenn syndi endilega í sínum sterkustu greinum. Til að falla ekki í sömu gryfju í þetta skiptið hef ég ákveðið að rýna ekki í einstakar greinar, heldur spá í styrkleika liðanna sent taka þátt í mótinu og þá sérstaklega þeirra sem koma væntanlega til með að bítast um toppsætin. Greinar þær sem syntar verða á landsmótinum eru: 100 m bringusund karla/kvenna 200 m bringusund karla/kvenna 50 m skriðsund karla/kvenna 100 m skriðsund karla/kvenna 400 m skriðsund kvenna 800 m skriðsund karla 100 m flugsund karla/kvenna 100 m baksund karla/kvenna 200 m fjórsund karla/kvenna 4 x 100 m skriðsund karla/kvenna 4 x 100 m fjórsund karla/kvenna Skinfaxi 17

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.