Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1990, Blaðsíða 14

Skinfaxi - 01.05.1990, Blaðsíða 14
LANDSMOTSSPA Birgitta Guðjónsdóttir íþróttakona frá Dalvík. Hún stökk 5,50 m í langstökki innanhúss sl. vetur og er að bæta sig verulega í spretthlaupi. Eg tel hana hafa mjög góða möguleika á að sigra í langstökkinu, en Birgitta Guðjónsdóttir mun sækja fast að henni. Guðrún Ingólfsdóttir sterk í kringlukastinu Engin kona hérlendis hefur náð jafn góðum tökum á kringlunni og Guðrún Ingólfsdóttir. Hún hefur nú hafið Jón Arnar Magnússon æfingar á ný eftir nokkurra ára hlé og hefur þegar sýnt i sumar að hún er fremstíflokki íkringlukastinu. Nokkur keppni gæti orðið í spjótkastinu milli írisar Grönfeldt og Birgittu Guðjónsdóttur. Iris ætti að sigra svo framarlega sem gömul meiðsli hái henni ekki of mikið. Kúluvarpið er eign Guðbjargar Gylfadóttur, en Guðrún og Soffía Rósa Gestsdóttir eru líklegar til að berjast um silfrið. Tvöfalt hjá HSK og UMSE í boðhlaupum? Sveit HSK er líkleg til að sigra bæði boðhlaupiníkarlaflokki. Þarmunskipta mestu styrkur Jóns Arnars, Olafs Guðmundssonar og Friðriks Larsens. Sveit UÍA hefur lengi verið sterk á Landsmóti, en nú hafa bestu mennirnir, Egill Eiðsson og Gunnar Guðmundsson gengið til liðs við önnur félög. Sveit UMSE með hinn ágæta íþróttamann Aðalstein Bernharðsson sem besta mann mun ekki gefa auðveldlega eftir. Vegna fjarveru Svanhildar veikist sveit UMSK verulega og er því líklegt að UMSE sigri bæði hlaupin í kvennaflokki. Hvar verða óvænt úrslit? Vegna þess hversu breiddin er lítil eru verulega óvænt úrslit sjaldgæf í frjálsíþróttakeppni á íslandi. Það er þó gaman að velta því fyrir sér. I nokkrum greinum geta úrslitin farið á ýmsa vegu s. s. í 1500 m hlaupi karla, þrístökki karla, langstökki kvenna og 400 m hlaupi kvenna. I mörgum greinum stendur keppnin hins vegar aðallega á milli tveggja keppenda s. s. í 400 m hlaupi karla, 110 m grindahlaupi karla, hástökki karla og kvenna, spjótkasti kvenna og millivegalengdum kvenna. Svo ég taki einhver dæmi þá kæmi mér ekki á óvart þó að Sigmar Gunnarsson, í 1500 m hlaupi, og Auðunn Guðjónsson, í 110 m grindahlaupi, gerðu betur en ég spái hér á eftir. Desso alltaf feti framar Oskum Garðbæingum til hamingju með nýja Desso- gervigrasvöllinn m m Á.ÓSKARSSON HF.AD Þverholti • Pósthólt 75 270 Mostellsbæ Simi 666600/667?rr 14 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.