Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1990, Blaðsíða 35

Skinfaxi - 01.05.1990, Blaðsíða 35
Y M I S L E G T Fimleikadömur á Seltjarnarnesi Fimleikadeild Iþróttafélagsins Gróttu á Seltjarnarnesi var stofnuð í janúar 1986. I vetur hefur deildin m. a. staðið fyrir fimleikanámskeiðum fyrir börn. Rúmlega 200 krakkar, þar af um 50 strákar, hafa stundað æfingar af kappi. í lok vetrar var haldin sýning þar sem foreldrum var gefinn kostur á að sjá hvað litlu fimleikastjörnurnar hefðu lært. Ahugi á fimleikum er mikill á Nesinu, en alls starfa 12 kennarar við þjálfun. Á þessum myndum sem teknar \voru á lokasýningunni sjást þjálfararnir Jenný Olafsdóttir og Margrét Sigmarsdóttir aðstoða fimleika- dömurnar. Nýr formaður Umf. Vesturhlíðar Ungmennafélagið Vesturhlíð ber nafn sitt af húsi UMFÍ á Öldugötu 14 og starfar í Reykjavík. Félagið var stofnað 26. maí 1987. I félaginu eru rétt um 30 manns á öllum aldri, en flestir eru gamlir ungmennafélagar. Auk reglulegra funda hafa félagar sinnt margvíslegum málum. Þeir aðstoðuðu við stofnun Umf. Fjölnis í Grafarvogi, en það félag hefur svo sannarlega spjarað sig vel. Gróðursettar hafa verið trjáplöntur í Þrastaskógi, tekið hefur verið þátt í Flreinsunarátaki UMFÍ og einnig Göngudegi fjölskyldunnar. Formaður Vesturhlíðar frá stofnun, Egill Heiðar Gíslason, lét nýlega af formennsku eftir “heillarík störf Helgi Gunnarsson sem hefur verið félagi frá stofnun tók við fonnennsku félagsins og er það von manna að hann eigi eftir að reynast vel. Allir ungmennafélagar á höfðuðborgarsvæðinu eru velkomnir í félagið. Helgi Gunnarssori, nýkjörinn formaður Umf. Vesturhlíðar Skinfaxi 35

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.