Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1990, Blaðsíða 30

Skinfaxi - 01.05.1990, Blaðsíða 30
G R E I N Samvinna sveitarfélaga og ungmennafélaga Sveinn Jónsson frá Kálfsskinni í Eyjarfirði skrifar í dreifbýli landsins eru víðast mörg verk óunnin til að skapa æsku landsins og öllum öðrum íþróttaiðkendum, sem fullkomnasta aðstöðu er hæfa hinum fjölmörgu greinum íþrótta sem við stundum í dag. Menn þurfa að lyfta Grettistökum til að slík aðstaða fáist í mörgum byggðarlögum landsins og þess vegna standa menn, hversu áhugasamir sem þeir eru, ráðvilltir frammi fyrir verkefnunum sem oftast kosta of miklar fórnir og of háar upphæðir, allt of fárra greiðenda. Þess vegnaþarf þrautseigju, samheldni, samvinnu og markviss vinnubrögð til að ná árangri, sem skilar okkurnærmarkinujafnt í uppbyggingu aðstöðunnar svo og í árangri viðkomandi íþróttagreina. Eg vil með fáum orðum skýra frá samvinnu Ungmennafélagsins Reynis og sveitarstjómar Arskógshrepps í Eyjafirði, þar sem við höfum leitast við að vinna saman að uppbyggingu og rekstri íþróttamannvirkja í litlu sveitarfélagi, sem aðeins telur tæplega 360 íbiía. Þar er mikill.íþróttaáhugi, en aðstaðan ekki sem skyldi og því nauðsynlegt að sameina kraftana ef það gæti orðið til þess að nýta betur þá fjármuni sem varið er í uppbyggingu. Þegar svo mannvirkin eru komin upp, þarf mannskap og fjármuni til rekstursins. Tveir grasvellir eru á íþróttasvæði sveitarinnar við félagsheimilið Arskóg. Þeir eru byggðir af ungmennafélaginu með styrk frá sveitarfélaginu. Með því móti hefur fengist gífurleg sjálfboðavinna einstaklinga og vinnuvélaeigenda og eru því mannvirkin eign ungmennafélagsins en ekki sveitarfélagsins. Öruggt má telja að með þessu móti nýtist miklu betur allt sjálfboðastarf helduren ef sveitarfélagið ætti og stæði fyrir framkvæmdum. Samrekstur á sér stað um skólahúsnæði og félags- og íþróttaaðstöðu inni.se m þ v í m i ð u r fy lg i r ekki kröfum tímans um vallarstærð og aðra aðstöðu. Lítil sundlaug er við félagsheimilið og var hún byggð í félagi sveitarfélags og ýmissa félagasamtaka í sveitinni. Varðandi rekstur allra þessara mannvirkja hefur verið gert samkomulag við ungmennafélagið yfir sumarmánuðina, en á veturna er reksturinn undir stjórn skólastjóra. A sumrin er ráðinn framkvæmdastjóri, sem sér um reksturinn, fær hann laun greidd úr sveitarsjóði, en í staðinn sér ungmennafélagið um sundlaugarvörslu og hefur innkomu af sundlauginni. Hefur félagið einnig öll önnur afnot af húsi og mannvirkjum frítt. Þessi framkvæmdastjóri sér um allt mótahald, umsjón og merkingu íþróttavalla og þrif sundlaugar og annarramannvirkja. Hagsmunirbeggja eiga að geta farið saman. Öll yfirstjórn er í höndum ungmennafélagsins, sem síðan verður að virkja félagsmenn sem best til að sinna einstöku starfa í laugarvörslu, rekstri sjoppu við mótahald, hirðingu og merkingu íþróttavallanna, hreingemingu á sundlaug og í íþróttasal, vörslu tjaldstæða, slá og hirðagrasbletti, og allt annað sem til fellur, eins og samræmingu á mótahaldi og æfingum í hinum ýmsu greinum íþróttanna. Með þessu móti tel ég möguleika á betri tjárhagsafkomu félagsins og betri tekjumöguleika og um leið sparast tjármunir í launagreiðslu sveitarfélagsins. Því fjármagni er betur varið í framkvæmdastyrki við áframhaldandi uppbyggingu. Fjárhagsleg ábyrgð yrði hjá ungmennafélaginu eftir sem áður og mannvirkin eign þess og undir stjórn þess. Að lokum vil ég gjarnan beina því til sveitarstjórnarmanna, sem a. nt. k. í hinum dreifðu byggðum landsins hafa vel flestir fengið sinn félagsmálaskóla í ungmennafélögunum og skulda þeirn e. t. v. uppeldið. Getum við ekki tekið á móti æskunni með uppbyggingu og rekstri hinnar fjölbreyttu aðstöðu, sem óskaðereftirídag. Virkjumunglingana sjálfa til forystustarfa, margt getur áunnist við það. Betri nýting fjármuna, æskilegri aðstaða og fullkomnari, meiri ánægja fólksins, meiri og almennari iðkun íþrótta, fleira fólk í dreifbýlið og betra mannlíf. Sveinn Jónsson 30 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.