Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1990, Blaðsíða 27

Skinfaxi - 01.05.1990, Blaðsíða 27
G R E I N Gervigras - Raunhæfur valkostur Inngangur Gervigras fyrir knattspyrnu liefur verið á markaðnum í meira en tuttugu ár. Þó hefur ekki verið veruleg þróun í gerð og gæðum gervigrassins fyrr en á allra síðustu árum. I fyrstu var gervigrasið stamt og hart og illa fallið lil knattspyrnuiðkunar, enda hafnaði hollenska knattspyrnusambandið algerlega árið 1976 að gervigras yrði notað á velli ætlaða til knattspyrnu. Eftir 1980 var farið að gera tilraunir til þess að setja sand í yfirborð gervigrassins til að bæta eiginleika þess. Það varð upphaf að nýju tímabili í þróun gervigrasvalla. Nú hafa knattspyrnu- sambönd nokkurra landa viðurkennt gervigrasvelli til æfinga, vináttuleikja og takmarkað notkun þeirra til kappleikja enda uppfylli þeir kröfur, sem settar hafa verið í þessum löndum. Gervigrasvöllurinn í Laugardal hefur sannað að slíkir vellir eiga rétt á sér hér á landi. En völlurinn kostaði of mikið og hann var of stamur og harður til að fleiri aðilar fylgdu þessu fordæmi. Nú eru komin á markaðinn efni, sem eru bæði ódýrari og hafa betri eiginleika til knattspyrnuiðkunar. Hér á eftir verður lítillega fjallað um kostnað gervigrasvalla, en fyrst verður gerð stuttlega grein fyrir þeim valkostum sem í boði eru. Uppbygging gervigrasvalla Uppbygging gervigrasvalla er ekki frábrugðin undirbyggingu vandaðra malar- og grasvalla. Ofan á malarfyllingu er sett jöfnunarlag og ofan á það koma gerviefnin. Aður fyrr var malbikað undir gerviefnin, en nú gerist þess ekki þörf. Þess í stað er íjaðurlag úrgúmmí eða plastfrauði sett ofan á jöfnunarlagið og loks er gervigrasteppið lagt efst. Samspil gervigrasteppisins og fjaðurlagsins ræður eiginleikum Þorbeigur Karlsson skrifar Þorbergur Karlsson vallarins. A. m. k. í þremur löndum, þ. e. í Þýskalandi, Hollandi og Noregi hafa verið settar ákveðnar kröfur sem yfirborðið, þ. e. fjaðurlag og teppi, verða að uppfylla til að hljóta viðurkenningu yfirvalda. Hér er um að ræða kröfur um fjöðrun, mýkt, viðnám í yfirborði og hegðun knattar. Eins og áður segir er fjaðurlagið gert úr gúmmíkurli eða plastfrauði. Gúmmíkurlið er ýmist lagt út á staðnum eða í mottum, en plastfrauðið er yfirleitt í mottum og í einstaka tilvikum áfast grasteppi. Fjaðurlagið er frá 8 mm þykkt og allt upp í 35 mm. Gervigrasið sjálft er gert úr plaststráum ofnum á styrkta plasthimnu. Mikið úrval mismunandi grasteppa er á markaðnum, allt frá þéttofnum teppum með beinum og stuttum stráum til gisinna teppa með hrokknum og löngum stráum. Ymist er settur íþau sandureða ekki. Þegar tekið er tillit til þess að unnt er að velja milli mismunandi tegunda fjaðurlags undir gervigrasteppi má ljóst vera að fjölbreytileikinn er mikill. Val grasteppa og fjaðurlags er háð ýmsum þáttum, s. s. fjárráðum, notendum, staðbundnu veðurfari svo eitthvað sé nefnt. Það er því mikilvægt að allar forsendur liggi fyrir áður en val gervigrasefna fer fram og framkvæmdir við slíkan völl eru hafnar. Nýlega voru opnuð tilboð í yfirborðsefni á gervigrasvöll fyrir Breiðablik í Kópavogi. Lægsta tilboð var nálægt 25 milljónum króna og það hæsta u. þ. b. 48 milljónir. Það var því nálægt 23 milljón króna munur á hæsta og lægsta tilboði, en þess ber jafnframt að geta að vissulega var munur á þeim efnum sem boðin voru. Með hliðsjón aftilboðunum má áætla að stofnkostnaður gervigrasvalla verði eins og fram kemur í töflu 1. I töflunni erjafnframt áætlaður Grasteppi og fjaöurlag Skinfaxi 27

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.