Skinfaxi - 01.05.1990, Page 12
LANDSMOTSSPA
“Hin frábæra aðstaöa í
Mosfellsbæ mun hafa í för
með sér besta árangurinn
á Landsmóti hingað til”
- segir Sigurður Pétur Sigmundsson sem spáir um úrslit
frjálsíþróttakeppninnar
Sigurður Pétur Sigmundsson, for-
maður Ungmennafélags Akureyrar
og íslandsmethafi í maraþon-
hlaupi, spáir um efstu sætin í
frjálsíþróttakeppni Landsmótsins.
Sigurður Pétur hefur lengi verið
áhugamaður um skráningu frjáls-
íþróttaafreka og var m. a. formaður
Afrekaskrárnefndar FRÍ í nokkur ár.
Sú staðreynd að frjálsíþrótta-
keppni Landsmótsins mun nú
fara fram við sambærilegar
aðstæður og tíðkast erlendis, mun
vafalaust hafa þau áhrif að árangur mun
verða betri og jafnari en á fyrri
Landsmótum, með þeim fyrirvara að
veðrið verði skaplegt. Góð aðstaða
hvetur keppendur til að undirbúa sig vel
fyrir mótið. Eg hef t. d. tekið eftir því
að gamlar kempur, sem voru svo til
hættar, hafa dregið fram skóna og munu
mæta í góðri æfingu í mótið. Ég segi
fyrir sjálfan mig að ég hef í vetur og vor
lagt trimmprógrammið til hliðar og
dustað rykið af erfiðum æfingum frá
fyrri árum og stefni að því að komast í
baráttuna íminni grein. Hvatinn til þess
er að sjálfsögðu væntingin um glæsilegt
mót við bestu aðstæður.
Verður Jón Arnar
maður mótsins?
Ólíklegt er að nokkur keppandi nái að
ógna Jóni Arnari Magnússyni í 100 m
hlaupi, 200 m hlaupi og langstökki.
Hann æfði við góðar aðstæður í
Bandaríkjunum sl. vetur og gæti náð
stórgóðum árangri íeinstökum greinum
á Landsmótinu, þó svo hann æfi fyrir
tugþraut. Jón Amar verður jafnframt
lykilmaðurinn í boðhlaupunum fyrir
HSK og gæti að mínum dómi orðið
maður mótsins.
Erlingur sterkur
í 400 m og 800 m
Islandsmethafinn í 800 m hlaupi,
Erlingur Jóhannsson, er kominn á fulla
ferð eftirerfið meiðsli. Hann á sigurinn
vísan í 400 m og 800 m. Brynjúlfur
Hilmarsson, UIA, sem ávallt hefur verið
í baráttunni í millivegalengdahlaup-
unum á undanförnum Landmótum, er
nú orðinn sænskurríkisborgari og verður
ekki með. Helsti keppinautur Erlings
mun vafalaust verðaFriðrik Larsen, sem
er mjög efnilegur hlaupari í framför.
Þessi spá er gerð u. þ. b. sex vikum fyrir
Landsmót. Þéss vegna er nokkuð erfitt
að átta sig á stöðunni í sumum greinum.
Mót eru rétt byrjuð og þ. a. 1. nokkuð
erfitt að ráða í það hvar íþróttafólkið er
á vegi statt í undirbúningnum fyrir
Landsmótið. Einnig má búast við að
keppendum takist misjafnlega upp við
að “toppa” á réttum tíma og svo verður
alltaf að gera ráð fyrir meiðslum. Hvað
um það, spáin er gerð til gamans og
síðan verður tíminn að leiða í ljós hvað
gengur eftir.
Tekst Daníel að vinna
1500 m hlaupið?
Keppnin í 1500 m hlaupi karla er mjög
opin. Daníel Guðmundsson hefur góðan
endasprettog getur unnið hlaupið. Hins
vegar hefur hann oft verið mistækur í
keppni þannig að Már Hermannsson
getur allt eins unnið. Sigmar
Gunnarsson, nýtt nafn á hlaupabrautinni,
gæti komið á óvart og sigrað. Hann er
nú búsettur í S víþjóð og hljóp m. a. 1500
m á 4:05 mín innanhúss sl. vetur.
Sterkt 5000 m hlaup
Már Hermannsson og Gunnlaugur
Skúlason munu að öllum líkindum
berjast um fyrsta sætið. Þeirra stíll er
nokkuð svipaður, báðir eiga gott með
að halda uppi góðum hraða en eru ekki
sérlega sterkir í endaspretti. Hlaupið
verður því hratt frá byrjun og gæti gotl
Landsmótsmet Jóns Diðrikssonar,
UMSB, 14:39,6 mín. frá 1981 fallið.
Már hlýtur að koma með eitthvað nýtt í
pokahorninu frá Svíþjóð senr nægir til
sigurs. Um næstu sæti verðurgeysileg
barátta. Ég ætla nú að vera dálítið
hlutdrægurog spásjálfum mér3. sætinu,
en Daníel Guðmundsson, USAH,
Rögnvaldur Ingþórsson, UMSE, Jón
Stefánsson, UFA, og jafnvel Sigmar
Már Hermannsson
12
Skinfaxi